fimmtudagur, júlí 20, 2006

Lífið er yndislegt.

Jú það eru orða sönnu lífið hreint og beint leikur við man hérna á Sólbakkanum gott veður dag eftir dag. Og ekki farið að sjá fyrir endan á þessari góðu tíð.
Við fórum í afmæli í gær hjá henni Sóldísi Maríu sem að varð eins árs og var það hin besta veisla.
Afmælisbarnið var í gríðalegu stuði og tók nokkur spor ein og óstudd því til sönnunar. Bakkelsið í veislunnni var til þvílíkra fyrirmyndar að foreldra hér eru byrjaðir að hafa áhyggjur um hvort nokkuð sé hægt að toppa þetta. En er það að frétta héðan að við erum svona nokkurn vegin búin að koma okkur fyrir en samt vantar svona herslumuninn. Herbergið er að verða til og eru systkynin komin með koju Friðrika uppi og Jakob niðri/uppí hjá okkur. Stofan er svona á hold en fengum borð frá Eiríki og Vigdísi ,einnig lánuðu þau okkur stóla. Keyptum sófa af honum Bjarka sem er hin besta mubla gott að sofa í og sitja meira þarf sófi ekki að hafa til brunns að bera. Eftirspurn eftir svefnpokaplássi hér í höllinni er gríðaleg og höfum við þurft að beina fólki annað á mestu álagstímum Maí-Nóv. Í dag hinsvegar er förinni heitið á stöndina á Amager sem að er víst snild. Og ætla ég að verða brúnn í dag og ef ekki brúnn þá allavega rauður. Jæja best að fara að koma sér út í sólina .

E.S
Hitti Kristínu frænku og Helga Hólm síðasta laugardag og var það æði því það er alltaf gaman að hitta þau. Reyndar gruna ég þau um að vera að forðast mig því þau hafa búið í Dk síðustu 10-12 árinn. En ákveða að flytja til Íslands þegar að ég flyt út. En þau fá hinar mestu þakkir fré mér fyrir að hafa kynnt mig fyrir elsta bar í köben. Bobi bar sem að er bara snilld ekki hávær tónlist,Lítill og sangjarnt verð á öli minnir mig. En ég fer þangað næsta laugardagi og vonast eftir að sjá einhvern hressan dana sem nennir að tala við mig. Eða að maður blikkar Eirík Stein með sér hver veit.

Engin ummæli: