þriðjudagur, júlí 18, 2006

Sól sól sól og aftur sól

Veðrið hérna er búiða að vera æðislegt þvílíkur hiti en samt aldrei yfir 30 stigin. Við eum búin að sofa hér á Rektorparken í þrjár nætur og líður bara vel fólkið hérna á kolleginu er bara virkilega skemmtilegt. Allavega það sem að við höfum kynnst. Búin að grilla tvisvar hér í svona hóp grilli þar sem að ákveðin hópur safnast saman og grillar saman. Og það er óhætt að segja að það sé búið að vera skemmtilegt og maður getur líka setið svo lengi hérna. Án þess að þurfa að fara inní flíspeysu. Því jú það er svo heitt hérna, því miður er veðrið ekkert sérstakt á landinu kalda. En munið bara að þetta er gott fyrir gróðurinn. Jæja ég er farinn út í sólina. www.icelandexpress.is
Það er ódýrt að koma í helgarferð til DK og held ég að íslenskaríkið borgi þetta eitthvað niður.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

já, kannski þeir ættu að fara að borga með helgarpökkunum, eða bara með ferð sem er í einhverja sól, kannski maður tékki á vottorði hjá lækni að maður sé þjáður af D vítamínskorti og þurfi sólarhleðslu annarsstaðar á plánetunni? Ragga

Nafnlaus sagði...

I´m on my way
Jæja ég held að það sé óhætt að segja að maður sé farin að telja niður dagan hér á rigningarlandi, þessar veðurfréttir svíkja mann alltaf. Hlakka til að sjá ykkur öll og knúsa og bæta geðheilsuna hjá stærri hluta familíunnar