föstudagur, júlí 21, 2006

Sröndin og Brenninetlur



Jæja fórum á Amager ströndina í gær og er óhætt að segja að þar hafi verið heitt. Áður heldur en lagt var af stað á ströndina þá bárum við á okkur undraefnið P20(besta sólarvörn í heimi) . Krakkarnir voru með vörn frá toppi til táar. Siggi bar sjálfur á sig en Gunnhildur fékk Sigga til að bera á sig. Þar sem hún ekki náði að bera á allt bakið. Jæja nú voru bara allir tilbúnir og lagt var í hann. Gunnhildur keyrði enda með meiri reynslu í akstri erlendis en Siggi. Þetta var ekki nema svona tíu mínútna akstur frá Sólbakkanum. Það var nokkuð um fólk þarna en við fundum okkur þarna einn fermeter og lögðum teppi og fínerí á hann. Fyrst var byrjað á að blása upp kútana og fóru Siggi og börnin að synda í sjónum. Sem að allir höfðu bara jafngaman að. Síðan bættist Gunnhildur í hópinn og svamlaði fjölskyldan þarna um í nokkrar mínútur. Því næst fór gamla fólkið upp úr og leyfði æskunni að svamla og byggja sandkastala. Þarna var fjölskylda í um tvo tíma sem þykir bara í það mesta fyrir svona hvítt fólk. Á baka leiðinni sofnaði æskann í aftursætinu enda Ford Escort 87' rómaður fyrir góð aftursæti. Þegar á Sólbakkan var komið þá var Siggi fenginn í fótbolta með strákunum á kollegginu þess má geta að Siggi hefur ekki spilað fótbolta síðan Ólafur Ragnar tók við forsetaembættinu í fyrsta skiptið. En þar var sviti og áreynsla og fékk Siggi að kynnast því hvernig er að lenda í Brenninetlum og er það ekki gott að hans sögn. Þegar Siggi kom inn um kvöldmatarleyti þá sést að hann hafði brunnið fyrr um daginn. En bara þar sem að hann gleymdi að bera á sig P2o og það er ótrúlegt að það sást hve langt hann náði inná bakið og svo gleymdi hann líka að bera á ristarnar og er brunnin þar. En það brann bara enginn annar þann dag. P20 það er málið en þið þurfið kannski ekkert að eiga það á Íslandi.
Í dag er þuyngskýjað og pínu rigning sem að er bara ágætt þið vitið gott fyrir gróðurinn. Enda var grasið hér á Sólbakkanum bara að brenna upp af vatnsskorti. Þannig dagurinn í dag kannski nýtist í að gera eitthvað hérna inni eða bara að ná í hjólið hennar Gunnhildar sem að er í Glostrup hjá honum Kidda. Einnig ætla María og Einar að koma í heimsókn til okkar í dag.
Þangað til biður fjölskyladan í sólbakkanum að heilsa

Engin ummæli: