Hver hefur ekki lent í því að nágrannarnir séu með party og þú þarft að líða fyrir það með því að liggja andvaka og hlusta á ömurlega tónlist. Þessu lenti ég nákvæmlega í, í nótt því Helena var með party sem býr í hinum stigaganginum. Þegar að ég fór inn kl 23;00 þá heyrði ég bara mjög lágt í tónlistinni en þegar leið á þá var allt hækkað í botn. Þannig kl 00:00 ætlaði þakið að gjörsamlega rifna af. Þé hélt ég að þetta fólk ætlaði kannski að fara að drulla sér niðrí bæ en nei þau ákváðu syrst það var svona gaman á Suðurbrautinni að vera þar áfram. Þetta pakk hélt fyrir mér vöku til fimm í morgunn. Afhverju hringdi ég ekki á lögregluna? Jú ég hélt að fólk væri nú það vel gefið að það mundi bara fara niðrí bæ. En hafið ekki áhyggjur ég mun skjóta þessu að henni Helenu við fyrsta tækifæri. En sem betur fer rumskuðu börnin ekki. Því þá fyrst hefði ég orðið frekar pist.
Var í Efstasundinu í dag að smíða sólpall með Sigga og krakkarnir voru í pottinum svo komu systkini mín hvert öðru þynnar. Kiddi grillaði lambalærið sem að var alveg sjúklega gott.
Hildur var á hraðferð eins og vanalega tók ekki tíman því hún var farinn áður en ég gat ýtt á start á skeiðklukkunni.
Morgundagurinn verður helgaður húsdýragarðinum Amen
laugardagur, maí 13, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Þetta er merkilegt fyrirbæri. Fyrst hugsa ég ég bíð í hálftíma svo hringi ég, æji hálftíma í viðbót þau hljóta að hætta þá, en svo allt í einu er komið undir morgun og maður baaaaaaara pirraður !!! ussssss // party poopers
Skrifa ummæli