föstudagur, maí 12, 2006

Kósý

Hverjar eru líkurnar á að Kiddi og Hildur eru á sama tíma á Íslandi. En það gerðist í fyrradag að kiddi kom til landsins svo fylgdi Hildur í kjölfarið og kom í gær. Okkur er öllum boðið í mat hjá mömmu á morgun réttara sagt í grillveislu. Ég hef nú lúmskan grun um að Hildur megi ekki vera að því að stoppa lengi í boðinu. Það klikkar ekki hún er yfirleitt farinn eftir 58,5 mínútur frá því hún stígur inn. Tek tíman á morgun og læt ykkur vita hvort að met falli í Efstasundinu.
Gunnhildur fór í sumarbústað með Ástu og CO nú rétt áðan og vona ég að þær eigi eftir að skemmta sér konunglega sem ég efast ekki um.

Við heimalingarnir þjófstörtuðum nammideginum og náðum okkur í smá nammi og myndina Vélmennin. Það kallast að hafa það kósý þá kúrum við og glápum á mynd það er æði.
Nema að ég gleymi því yfirleitt að glápa á myndina annaðhvort er ég að horfa á fallegu börnin mín eða að ég sofna bara. Svo vakna ég við það að Friðrika segi "komdu Jakob við erum að fara að sofa" svo breiðir hún teppið yfir mig og kyssir mig á kinnina.

Engin ummæli: