fimmtudagur, maí 11, 2006

Brotin loforð

Það hringdi í mig einn frambjóðandi frá vinstri grænum og var að reyna eð veiða eitt stykki atkvæði. Og það vildi svo heppilega til að ég var með bækling við höndina frá þeim. Frambjóðandin reynir að segja mér hvað þeir ætli að gera fyrir barnafólk og blabla bla.
Þá rek ég augun í að vinstri grænir ætli að vinna geng því að Alcoa fái að stækka álverið.
Ég viðra það við hann og læt hann vita að ég sé ekki sammála þeim í því máli. Þá segir hann mér að hann sé nú ekki sammála öllum baráttumálunum. Ég bað hann bara vel að lifa og lagði á. Hve mikið vit er í flokk sem ekki er sammála.

Þið sem að eruð á móti stækkun álversins ættuð að skoðið síðuna hjá ALCOA
og lesið hana svolitið vel og ég er eiginlega viss um að þið finnið margt sem að þið ekki vissuð um alcoa.


54 DAGAR ÞANGAÐ TIL VIÐ FÖRUM.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Alcoa komið til að vera