Jæja hvar skal byrja. Á Sunnudaginn fór ég í fermingu hjá henni Júlíu sem er frænka hennar Gunnhildar. Ég fór nú bara einn því Gunnhildur var að læra og börnin hjá mömmu því ekki var hægt að bjóða öllum krökkum vegna stærðar á einni fjölskyldu.
Það er alltaf jafn gaman að hitta þessa fjölskyldu þetta er svona samheldin fjölskylda. Þar sem að maður kyssir allr konur á kinnina sumar meira að segja á báðar. Og allir kallarnir takast í hendur og segja "Hvað er svo að frétta". Og alltaf skal maður á einhverjum tímapunkti hlæja vel það klikkar ekki. Reyndi einu sinni að halda andliti en það gekk ekki því áður en ég vissi af voru allir farnir að hafa áhyggjur að ég væri eitthvað veikur. Þessi boð eru svona eins og gleðipilla hjá þunglyndu fólki. Svo ekki sé minnst á matin sem var að þessu sinni fenginn frá Nings. Hreint út sagt góður og það var meira að segja Sushi sem telst mjög gott. Eftirrétturinn var heldur ekki af verri endanum kransakaka og svo SÖRURNAR hennar Lindu frænku. Þær eru bara hreint geðveikt góðar. Farðu bara að passa þig þú þarna Jói Fel.
Svo veit ég umm einn ákveðin mann sem fær koss á báðar kinnarnar frá Gunnhildi þegar að hún hittir hann. Það er nefnilega hann Gnúpur. Þegar að ég er að kveðja og að labba út þá finn ég að það er rifið í hnakkadrambið á mér og ég spurður hvort að ég ætli ekki að taka mat fyrir konuna mína. Og jú þar var hann Gnúpur að hugsa um öll dýrin í skóginum.
Svo var bara 1.mai tekin rólega rygsuguðum bílinn og slæptumst svo bara.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli