sunnudagur, september 27, 2009

Jæja.........þá kemur update og myndir!!!

Nú er löngu komið að því að við bættum við myndum enda fjölskyldan farin að kvarta yfir aðgerðarleysinu í okkur!

Við viljum byrja á því að þakka mömmu(Ástu tengdó)fyrir að hafa komið til að hjálpa og vera okkur innan handar. Bara svo þú vitir það mamma þá þótti okkur þetta ómetanlegt, þú ert alveg einstök, takk fyrir alla hjálpina. Elskum þig : )

Og til þeirra sem eru búnir að kommenta, takk fyrir allar fallegu kveðjurnar : )

Eftir að hafa fengið að vera fjóra daga inná spítalanum fórum við mæðgin heim. Ég var búin að ná mér vel eftir aðgerðina og Patrik Þór bara fullkomlega heilbrigður og tilbúinn að fara heim. Við erum búin að njóta þess að vera saman sem stækkuð útgáfa af vísitölufjölskyldu og Jakob og Friðrika keppast um að hjálpa til með Patrik Þór og vera í kringum hann. Við erum svo glöð með hvað þau eru góð við hann og hrifin af honum. Patrik Þór virðist líka vera mjög sáttur við lífið og tilveruna, sefur nær allan daginn, drekkur eins og hershöfðingi og vaknar varla meira en tvisvar á næturna. En hann er duglegur að skoða í kringum sig þau augnablik sem hann er vakandi og finnst gaman að stara framan í andlitin á Jakob og Friðriku.
Við erum einnig búin að vera dugleg að fara með hann aðeins út í vagninum, bæði þar sem veðrið er búið að vera svo gott og létt hreyfing flýtir fyrir mínum bata. Hann kann vel að meta ferska loftið og sefur vel í vagninum.

Laila frænka,og sætu mæðgurnar Valla, Júlía og Diljá skelltu sér til Kaupmannahafnar í fjóra daga og komu í smá heimsókn. Þó að við gátum ekki eytt miklum tíma með þeim var engu að síður gaman að ná að hitta þær og fá smá frænku skammt, sem ég hef sérstaklega saknað. Það er fátt jafn skemmtilegt og kært eins og frænku hittingarnir. Og elsku Íris mín, við hittumst bara við annað tækifæri. Ég veit að það var alveg brjálað að gera hjá þér. Sá myndir hjá mömmu frá Carnegie afhendingunni (sem by the way hefur án efa toppað árið eða áratuginn hjá mömmu) og þú leist ekkert smá vel út. Alltaf jafn sæt.

Og í tilefni dagsins í gær viljum við óska Alex og Línu innilega til hamingju með nafnið á litla prinsinum.

Þar sem maður er búin að vera frekar upptekinn af sér og sínum þá hafa nokkrar kveðjur gleymst, þannig að við viljum nýta tækifærið nú og óska Peter og Lindu til hamingju með Leu Dís þann 15.sept og Möggu og Óla til hamingju með Maríu pæju þann 20.sept.

Nú erum við byrjuð að einbeita okkur að því að finna taktinn í hversdagsleikanum og Siggi byrjaður á fullu aftur í verkefninu sínu. Krakkarnir eru eins og vanalega í skólanum og leikskólanum, eina nýja er að þau eru bæði byrjuð í fimleikum einu sinni í viku. Jakob í hóp sem kallast Tumletroldene sem minnir á leikjanámskeið með fullt af þrautabrautum og skemmtilegum leikjum. Hann elskar þetta og bíður spenntur eftir hverjum tíma. Friðrika er á námskeiði sem heitir Springtöserne fyrir 7 til 10 ára stelpur. Þar læra þær grunninn að gólfæfingum og trampolín æfingum. Það er svo gaman að horfa á hana hún er svo áhugasöm og ófeimin, enda finnst henni þetta alveð æði. Stoltið skín af henni eftir hvern tíma.

Hér koma nokkrar myndir í tímalínu frá degi eitt til ca. dagisins í dag:


14.sept. Gunnhildur og Siggi að hjóla upp á spítala klukkan 6.45 um morguninn.


Komin í gallann á leið uppá skurðstofu.


og svo var hann kominn í heiminn, 3,5 kg og 52 cm.


Gunnhildur brosandi í gegnum tárin með Sigga. Var að sjá Patrik Þór í fyrsta sinn.


Og svo vorum við komin inná stofuna okkar til að hvíla okkur.


Amma og systkinin að dást að nýfæddum Sigurðssyni.


Stoltur faðir.


Siggi að gera Patrik Þór kláran fyrir heimför.


Alveg að verða tilbúinn...


og svo kominn í flotta heimfaragallann sem að amma Ásta og afi Baldvin gáfu honum


Gunnhildur á leiðinn heim og lítur bara vel út miðað við allt sem á undan gekk.


Jakob með bróðir sinn. Hann getur ekki beðið eftir að fara að byrja að kenna honum að skríða.


Friðrika stolt systir með bróðir sinn.


Friðrika að dást að nýja bróður.


Feðgar að fá sér kríu.


Friðrika að passa Patrik Þór


Bræðurnir nývaknaðir.


Strákarnir saman í rúminu hjá Jakob


...hverjum líkist ég?

15 ummæli:

Unknown sagði...

*snökt, snökt*
Yndislega falleg þessi frændssystkini mín og mamma algjört bjúti. Vildi óska að ég kæmist aðeins til ykkar og sjá litla frænda í raunheiminum og fá kannksi smá knús frá frændsystkinum mínum og jú auðvitað foreldrunum líka ;)

luv
Linda sys

Unknown sagði...

Váá hvað er gaman að sjá nýjar myndir, og gott að heyra að allt gengur vel. Hafið það gott elskurnar. Kossar og knús

Kveðja Heiðrún, Runólfur og co

Nafnlaus sagði...

Oh, innilega til hamingju með litla fallega Patrik Þór og nafnið. Gott að sjá myndir og fréttir af ykkur. Við vorum svaka spennt að komast kannski í heimsókn á spítalann og var gjöfin keypt med det samme en svo er Lea Dís búin að vera meira og minna lasin eftir að hún byrjaði á vöggustofunni og bara klikkað að gera í skólanum þannig að það varð ekkert úr þessu. Við hlökkum mikið til að fá að koma í heimsókn þegar lægir aðeins um hjá okkur hérna uppfrá. Mjög gaman að kannast við sig þarna á myndunum þegar Siggi er að skipta á lillanum og svona. Og róleg með að líta vel út eftir herlegheitin Gunnhildur! Gangi ykkur vel áfram og við heyrumst fljótt. Knús frá Borups!
Linda, Peter og Lea Dís

Nafnlaus sagði...

hér er kíkt á hverjum degi eftir nýjum fréttum og myndum og var dásamlegt að vakna í morgun og fá sjóðheitar fréttir og MYNDIR. Gunnhildur mín þú lítur svo vel út ekki að sjá að þú hafir verið að fara í keisara eða nýbúin vá vá ...Prinsinn litli svo yndislegur sem og þau eldri. ÉG mundi aiðvitað vilja hafa ykkur í næsta bæjarfélagi svo maður gæti bara komið og knúsað eins og skot en sendi í staðinn fullt af kossum með express pósti til ykkar .

knús love
tinna frænka og fam

Nafnlaus sagði...

Hann er alveg yndislegur litli snáðinn - Innilega til hamingju aftur með hann og ykkur.
Laila biður kærlega að heilsa Friðriku, erum búnar að vera dáðst að þessum myndum af ykkur fallegu fjölskyldunni.
Íris, Doddi, Styrkár, Laila og Högna.

Nafnlaus sagði...

ohhhh þetta er nú meira yndið þessi gutti !!
Hann er svooooooooo knúsulegur :)

Æðislega gaman að fá fréttir af ykkur og gott að allt gengur svona glimrandi vel með hann.
Og þú seig, að mæta hjólandi uppá spítala !!!

Knús á ykkur,
Ragga og liðið

Nafnlaus sagði...

Auðvitað líkist ég mömmu minni, það segir amma ásta og hún ætti að vita það, æðislegar myndir og gott að fá smá update. love you all og koma svo meira af þessu

AMMA

Nafnlaus sagði...

Yndislegar myndir af fallegu fjölskyldunni- verður gaman að sjá þá frændurna saman um jólin.

Takk fyrir kveðjuna :)

kær kveðja,
Lína, Alex, Tristan, Urður og Stefán

Nafnlaus sagði...

Vá hvað þetta er orðin stór og myndarleg fjölskylda. Svo gaman að fá að sjá myndir loksins! Patrik svo knúsulegur superman og þú Gunnhildur lítur svo vel út. Hlakka til að sjá ykkur í næstu viku :-)
Kveðja
Hanna og gengið

Nafnlaus sagði...

Sætur! : ) Hann er bara nákvæmlega eins og Logi Geirs. Haha, nei grín! Gunnhildur hefur ekki fengið neina hjálp við að baka þennan dreng, Siggi á alla vega ekkert í honum. Það er Baldvins svipur á honum, ekki spurning. En gott að það gangi allt eins og í sögu, þið eruð svo dugleg. Sakna ykkar rosalega mikið kæra fjölskylda.

Kisskiss

-Ásthildur

Unknown sagði...

Innilega til hamingju með drenginn ;)

Nafnlaus sagði...

Ekkert smá gaman að sjá nýjar myndir af fallegustu börnunum í köben. Hann er nú ekkert smá líkur mömmu sinni litla gullið. Knús og kossar frá okkur.

Kveðja Hildur og Co.

Nafnlaus sagði...

Æðislega gaman að sjá fleiri myndir.

Hamingjan skín af ykkur öllum og ánægjulegt að allt gangi vel með litla kút.

Gunnhildur mín, þú lítur vel út og það ljómar af þér á bleika skýinu sem þú augljóslega ert á :) Siggi, tekur þig svakalega vel út sem þriggja barna faðir :)

Kossar á línuna.
Kv. M

Nafnlaus sagði...

Jiiii hann er alveg æði. Það er ekkert smá súrealískt að sjá Gunnhildi hjóla á fæðingardeildina fyrir fótaferðartíma hjá mörgum hehe. Krafturinn í minni og svo ekkert smá flott á eftir. Mér sýnist lilli mann nú bara vera nokkuð blandaður : )

Knús á ykkur öll og hafið það sem allra best,
Eva Dögg og crew

Nafnlaus sagði...

Oh Gunnhildur mín hvað ég vildi að maður væri komin út að knúsa. Ég er alltaf að skoða og finnst ég sjá nýjan svip í hvert skipti. Mér sýnist nú á öllu að þið séuð með mjög góða aðstoð frá þeim yngri!!! Sumir eru mjög fullorðinslegir og REYNDIR !!! á svipinn!
Knús á línuna
Linda Rós M frænka