Sá þetta inná Youtube í dag og varð að henda þessu hér inn þetta er svo sætt:
Þvílíkir mjaðmahnykkir!!!
Annars allt gott af okkur að frétta. Vigdís, Eiki, Sóldís María og Sunneva Dís kíktu yfir í mat í gær(og komu með matinn með sér, sem var æðislega gott lasagna, takk fyrir að bjóða okkur í mat ; ) Patrik Þór fékk mjög flott POP sumar outfit frá þeim og svo 'Signature Heiðrún' húfu og vettlinga frá Heiðúnu og fjölskyldu (takk innilega, alveg æðislegt sett). Það er alltaf gaman að fá svona heimsókn og enn skemmtilegra að fá að fylgjast með hinum ungunum á kollegíinu, þetta eru allt svo miklir karakterar : ) Og nú hefur maður enn meiri tíma til þess þegar maður er svona heima í barneignarfríi. Lífið getur ekki verið betra.
Ljósmóðirin kemur í heimsókn á eftir og hlakka ég til að sjá hvað Patrik Þór er orðinn þungur. Hann hefur það bara fínt, sefur og sefur enda eins og Vigdís sagði, það reynir mikið á og gerir litla kroppa þreytta á að stækka mikið, sem okkur finnst hann vera að gera. Það er alveg dagamunur á honum.
En annars er ekki mikið nýtt sem ég get sagt frá. Hlakka til að fá Hönnu Jónu í heimsókn, alltaf gaman að hitta vini og vandamenn þegar þeir eru staddir í Köben. Held að Magga Stína sé í bænum líka, verð að ath. það betur. Gæti verið gaman að ná að hittast allar saman.
Annars bið ég bara að heilsa í bili og kveð með lagi dagsins, 'Last request' með Paolo Nutini:
þriðjudagur, september 29, 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Dúllan mín.
Gaman að allt gengur vel og að það sé dekrað við ykkur með heimalöguðu gúmmilaði og gersemum :)
Hugsa til ykkar svaka mikið.
kv. M
Það var lagið daglegar fréttir
loooove ir
mams
Vona að Patrik Þór geti notað húfuna og vetlingana. Það væri nú gaman að geta séð hann í eigin persónu. Knús Heiðrún og strákarnir
Skrifa ummæli