Seint skrifa sumir en skrifa þó. Héðan er allt gott að frétta enda hvernig annað hægt í þessari endalausu blíðu. Friðrika komin í sumarfrí en mætir enn á fríddarann þar sem hver dagur er skipulagður með einhverju skemmtilegu s.s. skógarferðum, risa-pönnukökudegi, vatnslagsdegi o.s.frv. Jakob er svo bara eins og vanalega á leikskólanum og það er eins gott að muna að bera sólarvörn á þessa litlu kroppa þar sem þau eru úti mest allan daginn í sólinni : )
Siggi kláraði skólann síðasta föstudag og gekk mjög vel, enda ekki við öðru að búast. Við fórum svo út að borða á laugardeginum, bæði til að halda uppá próflok og afmælisdaginn. Við hjóluðum á Sticks n' Sushi á meðan Bjarki frændi hans Sigga passaði krakkana. Eftir matinn hjóluðum við í veðurblíðunni á Paradis, og sátum úti á meðan við nutum eftirréttsins.
Á sunnudeginum var svo skellt sér á ströndina. Við fórum á Bellevue strönd í stað Amager þar sem okkur langaði að prófa eitthvað nýtt og uðrum ekki fyrir vonbrigðum. Siggi leigði hjólabát og fór út með krökkunum á meðan ég bakaðist í sólinni. Það var ekki laust við að við vorum frekar dösuð á heimleiðinni og drengirnir dottuðu aðeins í lestinni, mér og Friðriku til mikillar skemmtunar þar sem við fylgdumst með höfðinu á Sigga detta í allar áttir.
Ég og Siggi vorum frekar brunnin eftir daginn, þó svo að við bárum á okkur sólarvörn 30 nokkrum sinnum. EN ég hugsa betra við en börnin!
Siggi fór svo á mánudagskvöldinu að hitta strákana sem eru með honum í bekk þar sem allir voru þá búnir í prófum. Það var farið í Fælledparken, grillað og farið í leiki. Hann skemmti sér mjög vel enda hvernig annað hægt, þetta eru allt svaka hressir strákar og ekki er Siggi í rólegri kanntinum. Hann gaf svo krökkunum frí frá leikskólanum og fríddaranum á þriðjudeginum þar sem hann var heima og það var farið í Kirkjugarðinn og veitt froska, bakaðar vöfflur og farið út í garð til að busla. Ég hefði gjanan viljað vera með í stað þess að sitja inná skrifstofu að kafna úr hita en ég fer ekki í sumarfrí enn. Ég sat í gær með alla glugga opna uppá gátt og opið út á gang til að fá loftið á einhverja hreyfingu en án mikils árangurs enda skellti ég í mig ca. 2 lítrum af ísköldu vatni yfir allan daginn, annað var ekki hægt.
En svona eru síðustu dagar búnir að líta út hjá okkur, við erum öll hress og kát og hlökkum bara til komu nýja barnsins.
Ég vildi kasta annarri kveðju á Lindu sis og fjölskyldu og óska þeim aftur innilega til hamingju með nafnið á litla prinsinum, Michael Fjólar, rosalega flott. Og við vonum að hann hafi það sem allra best. Vildi óska að ég gæti skipt við Sigga í næstu viku bara svo ég fengi aðeins að halda á og knúsa litla frænda, en það verður að bíða betri tíma.
Kasta kveðju á alla heima og reyni að senda Sigga heim með smá gott veður.
P.S. Hildur og Hjölli, við erum rosaánægð með borðið. Það tekur sig vel út í
stofunni ; )
8 ummæli:
Gaman að heyra loks frá þér stóra mín, nú bíð ég bara eftir nýjym myndum. ég vona svo að haustiðð verði í stíl við sumarið hlakka mikið til að koma til þín. og svo eru bara 8 dagar í stákana jibby
knús og aftur knús
mamma
En æðislegt að heyra svona miklar og góðar fréttir frá ykkur. En ég tek undir með mömmu þinni - nú vantar myndir af ykkur öllum. Er að fara til Englands á föstudag á námskeið - þar er víst sama hitabylgjan og hjá ykkur sem er doldið of heitt fyrir mig! Hlakka til að sjá myndirnar!
Knús frá Lindu Rós M. frænku
hæhæ gaman að fá fréttir Gunnsó mín og innilega til hamingju með litla frændann !! Ég sá myndir af honum á facebook og hann er ekkert smá æðislegur !
Hafiði það gott á grillinu ;)
Reg
hæhæhæ gaman ad heyra í thér...segi thad sama og linda rós og mamma thín...vil myndir...langar ad sjá fína belginn:) vonandi kemst ég adeins til köben í haust svo ég geti séd adeins framan í thig:)
yours truely magga stína
Innilegar hamingjuóskir með nýja frændann ! Og Linda Rós, innilega til hamingju með litla krílið ef þú lest þetta.
kv. María
Hæhæ. Ekkert smá æðislegar myndir, sérstaklega "hjarta á kúlu"
Til hamingju með litla frænda, og Linda ef þú lest þetta, til hamingju með soninn.
kv. Hanna
Takk fyrir kveðjurnar
En hvað er gaman að sjá myndir af fallegur systkinunum, verðið að vera duglegri að setja inn myndir þar sem þið eruð svo langt í burtu og maður sér þessa engla svo sjaldan.
get varla beðið eftir að geta knúsað hann Jakob aðeins.
knús á liðið
Linda
Takk fyrir kveðjurnar
En hvað er gaman að sjá myndir af fallegur systkinunum, verðið að vera duglegri að setja inn myndir þar sem þið eruð svo langt í burtu og maður sér þessa engla svo sjaldan.
get varla beðið eftir að geta knúsað hann Jakob aðeins.
knús á liðið
Linda
Skrifa ummæli