Jæja, þá eru Siggi og Jakob lagðir af stað til Íslands, eigum eftir að sakna þeirra en við skvísurnar komum til með að láta tímann líða með ýmsu móti!!!
Jakob var svo spenntur og glaður í morgun því hann vissi að í dag fengi hann loksins að fara í flugvélina, hann bókstaflega ljómaði, enda búin að bíða lengi eftir þessu. Honum finnst það líka svo gaman að þetta er alveg spes strákaferð þeirra feðga.
Heyri ábyggilega í þeim í kvöld á skype.
Seinasta helgi var mjög skemmtileg þar sem Runólfur, Heiðrún og börn voru á svæðinu og margt skemmtilegt gert í tilefni þess.
Við stelpurnar fórum út á föstudagskvöldinu, skelltum okkur í Garð Kóngsins og tókum með okkur teppi, púða og sushi. Sátum alveg til kl.22.00 að spjalla en hjóluðum svo niður á Nyhavn til að kaupa fleiri birgðir og tiltum okkur svo á flottu bryggjuna fyrir utan Skuespillerhuset sem liggur beint á móti nýja óperuhúsinu. Það var svo hlýtt og gott veður að þetta hefði ekki getað verið betra. Minni ferð var heitið heim um miðnætti en stelpurnar héldu áfram niður í bæ til að mála hann rauðan, ja eða allavega vel bleikan.
Á laugardeginum var svo komið að strákunum, en þeir skelltu sér í Fælledparken til að grilla og geima. Þeir enduðu kvöldið úti í garði fyrir utan Solbakken og héldu uppi gríðarlegri stemmningu fyrir aðra íbúa með íslenskum útilegulögum a la kassagítar.
Á sunnudeginum var setið úti í garði og haldið uppá 4 ára afmælið hans Örnólfs með kökum og kræsingum. Mjög skemmtileg helgi í alla staði.
En að allt öðru, mér tókst að tína bæði veskinu mínu og símanum á innan við hálftíma síðasta laugardag!!!!! Óléttan aðeins farin að segja til sín?
Við vorum í bænum að versla eitt og annað, en þegar við komum inn á lestarstöðina mundi ég eftir því að okkur vantaði sólarvörn og ætlaði að skjótast í Matas, en þegar ég fór að leita að veskinu uppgötvaði ég mér til skelfingar að ég var ekki með það. Siggi henti frá sér pokunum og rauk af stað niður í bæ til að athuga hvort það væri enn þar sem við versluðum síðast og til allra hamingju hafði einhver verið svo heiðarlegur að skila því í afgreiðsluna. Ég var svo glöð því það hefði verið eintómt vesen að fara að panta fullt af nýjum debet og kredit kortum plús að sækja um ný tívolí-,dýragarðs- og vinnukort.
Eftir að ég hafði verslað í Matas, tilkynnti Friðrika okkur að hún þyrfti á klósettið, NÚNA, þannig að ég rauk með hana niður á almenningsklósettið. Svo var lagt af stað heim.
Seinna um kvöldið sá ég mail frá Lindu systir því hún hafði fundið fínan Emmaljunga vagn til sölu sem ég vildi helst festa strax, en þegar ég ætlaði að hringja var síminn minn horfinn!!! Og hvar gat ég hafa lagt hann frá mér? Jú, á vaskinn á almenningsklósettinu á meðan ég þvoði hendurnar á mér og Friðriku. Damenit!!!!!!!!!!!!!!!!!
Ég er núna búin að gera heiðarlega tilraun til að finna hann, en án árangurs : (
Mér er svo sem sama um símann, hann er búinn að duga mjög vel síðan 2001, en ég er heldur leið yfir að hafa tapað öllum upplýsingunum sem voru í honum.
Þannig að þið sem lesið þetta blogg, það væri vel þegið ef þið gætuð sent mér nafn og númer á g-mailið mitt þannig að ég geti sett þær upplýsingar inn í nýja flotta símann minn þegar ég fæ hann : )
gath76@gmail.com
Ég og Friðrika ætlum að byrja fyrsta daginn okkar einar með því að fara í keilu eftir vinnu : ) og kannski bíó, kemur í ljós.
Hafið það gott,
kv, Gunnhildur
fimmtudagur, júlí 09, 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Mikið svakalega er ég ánægð með þig systir góð hvað þú ert dugleg að blogga, halda bara áfram og vera dugleg að henda inn myndum með ;)
Fórum í bíó í gær, þ.e. ég og mamma og nokkrar frænkur á My sisters keeper og þú getur rétt ímyndað þér hvort maður hafi ekki grátið. Besta var að einhver grét svo mikið að það heyrðist ekkasog og þá eiginlega misstu sig allir úr hlátri, fullur salur af kvennfólki og snökktið í salnum leyndi sér sko ekki hahahaha...... bara fyndið. En ég mæli sko með þessari mynd hefði helst viljað vera ein heima að horfa þá hefði maður sko gefið grátinum lausan tauminn.
knús á ykkur mæðgur
Linda frænka
hæ hæ elksu Gunnhildur mín
frábært að þú ert farin að blogga líka og ég segi eins og litla systir þín....bara vera dugleg að skrifa og henda inn myndum okkur finnst svo gaman að fá að fylgjast með ykkur. Ég kíki reglulega hingað inn finnst það svo gaman
takk fyrir kvittið á okkar síðu ást
farðu vel með þig það er mikill spenningur að fá að sjá litla frænda þegar hann kíkir á heiminn.
love u
knús Tinna
Skrifa ummæli