miðvikudagur, júlí 22, 2009

Ísland-Danmörk

Jæja þá erum við drengirnir komnir og óhætt að segja að ferðin var góð, en það er alltaf gott að koma heim. Það eru svo margir sem að við hefðum viljað heimsækja en því miður náðum við ekki að heimsækja nema brota brot af þeim.
Næst verður vonandi meiri tími eða bara að við höldum kaffiboð til að hitta alla á einu bretti.

Ferðin var í heild sinni hrikalega góð við nýttum sundlaugar höfuðborgasvæðisins reyndar svo vel að Jakob náði að fara þrisvar í sund einn og sama daginn.

Eða sundnámskeið um morgunninn og svo í nýju Álftaneslaugina sem að var svo léleg að við drifum okkur upp úr og fórum í Vallarlaugina.

Jakob var það heppinn að hann Tristan frændi hans var í sumarfríi og var hann smá með okkur. Það var alveg ótrúlegt að vera með tvo fimm ára og verða ekki var við einn árekstur. Þeir eru bara alveg hrikalega góðir samann. Og síðustu helgi fór Jakob með Lailu frænku sinni, Stefáni og Tristan í sumarbústað og var heila helgi. Hrikalega gaman og á eftir að lifa í minningunni hjá honum lengi.

Gaman að vera kominn í þetta daglega amstur aftur ef amstur skyldi kalla. Er og verð í fríi heima og ætla að reyna að skrifa B.s ritgerðina fram að skóla, en hún skrifar sig ekki að sjálfum sér eins og að ég hef komist að. Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili bið bara að heilsa öllum.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Siggi minn
því miður náðum við ekki að smella af ykkur feðgum...það var nóg að gera hjá mér og tíminn fljótur að hlaupa frá manni...
knús á línuna

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir samveruna :)
Verður enn meira stuð næst ;)
Kær kveðja,
Tristan frændi

Nafnlaus sagði...

Sakna ykkar strax : (

Nafnlaus sagði...

Afhverju kom ekki nafnið mitt? Hehe
Kv, Ásthildur.