mánudagur, júlí 27, 2009

Helgin sem leið

Laugardagurinn var bara frábær, eða bara svona eins og laugardagar eiga að vera. Við vöknuðum ekki snemma eða einhvertímann uppúr 10 sem að verður að teljast að sofa út. Siggi og Friðrika fóru í píanótíma sem að er fyrsti eftir þriggja vikna sumarfrí. Og er óhætt að segja að Friðrika hafi engu gleymt en kennarinn hennar var frekar ánægður með hana. Hún var látin spila nýtt lag sem að á bara að spila annaðhvort með einni hendi eða það þarf að tvímenna með þrjár hendur. En Friðrika vildi geta spilað það með tveimur höndum og fundu þær út úr því. Á meðan Sigga leið eins og að hann væri í latínu tíma á frönsku. En svo allt í einu segir Evgenija kennarinn „við skulum hafa G hérna“ en þá grípur Friðrika framm í og segir „Nei er ekki betra að hafa C hérna því þá hljómar þetta svona í staðinn fyrir svona“ og spilaði hún báðar nóturnar. Evgenija horfði á mig og horfði síðan á Friðriku og segir „veistu Friðrika þetta er svo rétt hjá þér þú ert með einstakt tóneyra“ og breytir G-inu í Cé. Siggi var frekar stoltur af stelpunni sinni, eiginlega var hann bara að rifna úr stolti. Eftir tíma leysti Evgenija hana út með gjöfum (rússnesku sælgæti) sem mín var frekar sátt með en er einungis búin með eitt nammi.

Eftir píanótímann fór Siggi með Nintendo WII dósasjóð barnanna í Super Best til að fá aur fyrir dósirnar. Og viti menn þau eru búin að safna sér dósum að verðmæti 300 dkr sem að verður að teljast góðar fréttir fyrir þau og gera foreldrarnir ráð fyrir að það verði hægt að kaupa WII innan skamms. En Gunnhildur og Siggi lofuðu að ef að þau næðu að safna fyrir helming tölvunar þá mundu þau borga hinn helminginn og er óhætt að segja að þetta hafi kennt þeim að safna.

Svo var bara haft það huggulegt í garðinum eða þar til úrhellis rigning skall á og börnin kölluð inn í hasti, sem var s.s. í lagi þar sem Magga Stína og fjölskylda ætluðu að kíkja í heimsókn og það átti eftir að skreyta skúffukökuna sem Siggi hafði bakað fyrir börnin á föstudeginum. Þannig að það var skellt sér í stellingar með allskonar glassúr og skrauti og skipt kökunni í tvennt til að leyfa Friðriku og Jakobi að leggja lokahönd á veitingarnar. Það er alltaf jafn gaman að hitta Möggu, Óla og stelpurnar þegar þau eru í borginni, sérstaklega fyrir Sigga sem getur talað við Möggu um Revit og Autocad : ) Algjörir sálufélagar þegar kemur að þessu efni. En það verður að viðukennast að við hjónin þurfum að fara að skella okkur í heimsókn til Jótlands, annað er bara ekki hægt. Höfum aldrei farið í heimsókn til þeirra. Takk fyrir komina sæta fjölskylda.
Og á meðan við erum að ræða um Möggu þá viljum við óska henni:

INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!!!!!!!

Seinni part laugardags var grillað Hrefnukjöt sem að keypt var í fiskbúðinni á Sundlaugavegi, sem er vel hægt að mæla með, og boðið Möggu og Svenna og Lydíu og Sindra (plús börnum) í mat. Hugguleg stemmning og góður félagsskapur : ) Hrefnan var alveg hrikalega góð að meiri segja fólk sem að hafði aldrei smakkað hvalkjöt var bara frekar ánægt.

Sunnudagurinn var tekinn í afslappelsi og bakaði Gunnhildur kanilsnúða sem fylgdu með út í garð, ásamt kaffi og fleiru, og runnu þeir vel niður í nágranna sem að slöppuðu af úti í blíðunni.

Mánudagurinn byrjaði frekar snemma þar sem að Friðrika var að fara í sumarbúðir í heila viku og komu foreldrar vinkonu hennar að sækja hana til að skutla henni á mætingarstaðinn og fór Gunnhildur með. Það er ekki laust við að stelpan hafi verið spennt í gærkvöldi og var endalsut að vakna í nótt til að athuga hvað klukkan væri. Nú er það bara vika í skemmtileg heitum hjá dömunni og vika af kvíða og óvissu hjá foreldrunum, sem líður eins og þeir hafi leyft dótturinni að fara á útihátíð (haha).






Mín á leiðinni í sumarbúðirnar

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jiiiiiiii og OHHHHH MY GOOOOOOD
Sætust sætust sætust

kossar og knús
Linda systir