Ég þjáist af svo miklum kvíða varðandi lokaverkefni þessara annar. Ég er annað hvort alveg á þvílíku róli og allt gengur alveg hrikalega vel en svo fer ég að spá í að breyta. Og áður en að ég veit af þá er ég búinn að breyta verkefninu með tilheyrandi vinnu. En svo ákveð ég að gera fleiri detaila og nú er ég ekki viss hvar ég eigi að stoppa hvað þarf ég að vera nákvæmur. Mér líður eins og ég komi engu í verk en er samt kominn með fullt. EN þá fer ég að hugsa vá ég hef bara hálftíma til að kynna verkefnið og ákveð að sleppa hinu og þessu en það er samt einhvernvegin svo mikilvægt að ég get ekki sleppt því.
Svo fylgir það náttúrulega að þegar að maður er að vinna í einhverju svona pressu þá fer hugurinn á flug og áður en ég veit af þá er ég að horfa á kennslumyndbönd fyrir Photoshop eða Flash. Tja já eða blogga nákvæmlega þetta.
En já stelpurnar komnar heim sem að er bara hrikalega næs og eru þær komnar inní sína daglegu rútínu. Í dag er ég ok Jakob bara heima þar sem að hann er með ælupestina. En jæja best að fara að reyna að sökkva sé niður í verkefnið. Já svo er ég og Jakob að koma heim í Júlí kannski um miðjan eða eitthvað svoleiðis erum ekki búnir að ákveða okkur en sjæsinn hvað er dýrt að fara yfir hafið.
miðvikudagur, júní 10, 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli