Jæja þá eru stelpurnar búnar að vera heima í viku akkúrat í dag. Og er óhætt að segja að við strákarnir erum búnir að hafa það gott. Erum úti að leika á daginn og eftir skóla og eldum samann á kvöldin. Nema í gær þar sem að við tókum sameiginlega ákvörðun um að fara niðrí bæ og skella okkur á Burger King.
Allt í einu þykir mér hann orðinn svo stór og byrjaður að hafa áhuga á svo miklu og vill ræða svo mikið.
Eins og nú á miðvikudaginn þegar að við vorum búnir að baka Pizzu og vorum að fara að borða þá sagði ég honum að fara og finna eitthvað fyrir okkur í sjónvarpinu sem að við báðir höfðum gaman að. Og vitir menn þegar að ég kem inn í stofu þá er hann að horfa á Dr House. Ég var frekar sáttur við það og spruttu upp miklar umræður um líf og dauða svo var hann einig mjög áhugasamur um hvernig blóð væri á litinn í mismunandi dýrum og hvort að öll dýr væru mð heila og þar fram eftir götunum.
E n í gær ákváðum við að hafa frekar kósýkvöld og drógum fram svefnsófann og bjuggum um okkur. Reyndar er hann búinn að biðja frekar mikið um þetta síðustu daga og ákvað ég þar sem að er frídagur í dag að við mundum vaka aðeins og horfa á eina mynd. Myndin sem að varð fyrir valinu var fyrsta X-men myndin. Jakob hefur séð margar myndir sem að börn á hans aldri kannski hafa ekki séð en allt með mig eða Gunnhildi með til að láta loka augunum. Og í gær var enginn breyting á en þar sem að ég þekki X-men myndina ekki það vel þá var ég alltaf annað slagið að biðja hann um að loka augunum. Þó svo að enginn þörf var á ég bara þekkti myndina ekki betur. En þegar að drengurinn tóg hendurnar frá augunum þá vissi hann nákvæmlega hvað hafði gerst. Ég grunaði að hann væri að nota sama bragð og maður gerði sjálfur í denn eða að horfa í gegnum puttana. Þannig að ég að hann um að setja bara sængina fyrir augun. En alt kom fyrir ekki hann vissi hvað hafði gerst.
Seinna um kvöldið talaði ég við Gunnhildu og sagði henni frá þessu en þá sagði hún mér að hann hafði séð myndina áður og kynni hana líklegast utan af. Flott þannig að ég er paranoide pabbinn.
Jakob fékk að tala við systur sína í gær í símann en það er mikið búið að reyna að ná í hana en hún er aldrei heima þannig að þau voru svona eiginlega að tala samann í fyrsta skipti síðan að hún fór heim. Það kom gríðalegt bros á drenginn þegar að hann heyrði röddina í systur sinni og svo sagði hann „systir ég sakna þín“ þannig að ég held að það verði gleði hér á mánudagsmorguninn þegar að þau hittast. En jæja ég og Jakob erum að fara á æfingu og svo að leika okkur.
föstudagur, júní 05, 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Æj þau eru svo krúttleg, en ég held að Friðrika hafi ekki saknað hans jafn mikið og hann hennar, hún tjáði mér það að hún væri nú pííínu fegin að losna aðeins við hann : ) Og svo fékk maður að heyra hvaða nafn þau vilja á litlabumbubúann, það eru nöfn á borð við Kalli og Palli. Frumlegt ekki satt?
Kysstu strákinn frá mér, það er svo stutt síðan hún fékk koss. Hafið það gott.
-Ásthildur.
Skrifa ummæli