Virka skattahækkani? Auðvelda svarið væri, auðvita virka skattahækkanir því þá fær ríkið meira í sinn hlut.
En mundu skattalækkanir koma með meiri pening í kassann fyrir ríkið? Ég er fullviss um að það mundi gerast tökum t.d íslenska framleiðslu sem dæmi.
Þegar að ég var á Íslandi nú í apríl þá fór ég í ÁTVR og keypti mér bjór ég skimaði um eftir lægsta verðinu þar sem að maður er jú að spara. En fljótlega sá ég að það var nú ekki svo mikill munur á innlendum og erlendum afurðum. Og í staðin fyrir að halda þéttings fast um budduna ákvað ég að kaupa mér þrjár íslenskar tegundir sem að ég hafði ekki smakkað. En samt sem áður þá voru þetta þrjár dýrustu tegundirnar.
Það væri gaman að vita hvað hefði gerst ef að ég hefði komið inn í sömu búðina og séð skilti sem að stendur á Íslenskar afurði stórum stöfum. Ég hefði klárlega labbað þangað til að athuga hvað væri um að vera og þá hefði ég séð þessar sömu þrjár Íslensku tegundir nema hvað þær væru 25% ódýrari en innfluttu tegundirnar. Hvað hefði gerst jú ég og allir aðrir sem að kunna gott að meta myndu taka Íslenska framleiðslu framm yfir þá erlendu.
Reyndar er þetta nú auðvelt á blaði en líklega erfitt að framkvæm. En Dönum tekst þetta hér er dönsk framleiðsla og öll framleiðsla sem að er innan EU miklu ódýrari en t.d bandarísk framleiðsla.
Með skattalækkunum held ég að það kæmi meira í kassan en með þessum endalausu hækkunum. Og nú er ég ekki bara að tala um mjólkurbúðina heldur alla almenna íslenska framleiðslu.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli