laugardagur, maí 30, 2009

Ásta Macgyver Mich

Hver man ekki eftir Macgyver Þetta voru þættir sem að voru sýndir í kringum 92‘ á stöð tvö. Kíkið á trailerinn ef að þið munið ekki eftir þessum hasarþætti.






Ástæðan fyrir því að ég er að minnast á þessa mjög svo vanmetnu þætti er sú að rétt í þessu var ég að fara að hella uppá kaffi. En vitir menn það boru ekki til neinir kaffipokar. Og nú voru góð ráð dýr þar sem að þetta er svona einn af föstu liðunum á morgnana. Og ég vakna bara ekki almennilega fyrr en að ég fæ smá kaffi tár.
Fyrsta sem að ég hugsaði var ohh ekkert kaffi. En þá hugsaði ég hvað mundi Ásta tengdó gera og setti ég mig í spor Ástu sem að hefur sama morgunsið og ég. Og vitir menn ég datt í Ástu trans og bjó til kaffipoka úr klósettpappír. Já ég veit ekki flókið og kannski ekki mikill sigur en kaffi fékk ég. Og allt því að þakka að ég hugsaði eins og Ásta.
Reyndar getur tengdamóðir mín gert fallbyssu úr kúlupenna ef að með þarf alveg eins og Macgyver.


En jæja þá fóru stelpurnar í gærkvöldi til Íslands og verða þar framm á sunnudag. Þannig að það er strákavika hér í Köben og ætlum við að strákast eins og Jakob segir það. Við ætlum að byrja daginn í dag á því að kíkja á hjólabretti. Já drengurinn er kominn með hjólabretta æði þar sem að nokkrir í leikskólanum komu með brettin sín á föstudaginn í leikskólann. Og fékk Jakob að prófa og verð ég að segja að hann var alveg nokkuð góður miða við aldur og jafnvægisskyn.

Engin ummæli: