miðvikudagur, apríl 15, 2009

Heimför

Jæja þá er ég kominn heim eftir 9 frekar langar vikur á Íslandi. Þetta var fínt í alla staði en allt of langur tími til að vera frá fjölskyldunni, sérstaklega þar sem að Gunnhildur er ólétt og leið ekki allt of vel þennan tíma.
En þetta var bara verkefni og sem betur fer er það búið.
Ég kom suprise heim, þar sem að ég átti að koma heim fimmtudaginn 9 april en ég stalst til að koma mánudaginn 6. April. Var lentur á Kastrup uppúr 11:30 fékk töskurnar uppúr 12 frekar löng bið en svo var það bara tík ég bara Ástuna á þetta og tók leigubíl heim. Hentist inn með töskurnar sem að var hægara sagt en gert þar sem að ég var með hvorki meira né minna en 15 kíló í yfirvigt. Hendi öllu því íslenska sem að ég var með inn í frysti og skildi restina eftir inn á miðju gólfi.
Ég hljóp eins hratt og ég gat (sem að er ekkert mjög hratt) niðrí kjallara og sá þar uppáhalds hjólið mitt ég hugsaði vá hvað ég er búinn að sakna þess að geta hjólað um borg og bý. Þaut af stað og stoppaði í blómabúð til að kaupa eina rauða rós. Þegar að ég var kominn fyrir utan hjá Gunnhildi þá hringdi ég í hana úr íslenska númerinu og bjó til einhverja lygasögu sem að ég á mjög erfitt með. Nema hvað þá var ég að tala við hana og fór inn í lyftuna og kjaftaði við hana um einhvern pakka sem að ég var að senda henni og balalalalala. Svo þegar að ég kem út úr lyftunni þá heyrir Gunnhildur bergmál í mér og öskrar „Þú ert kominn þú ert kominn“. Það má segja að þetta hafi tekist vel þar sem að húnn vissi ekkert aðég var að koma og var bara mjög ánægð að fá mig heim. Og ég segi það og skrifa að ég mun aldrei vera svona lengi frá þeim aftur (allavega ekki meðan að hún er ólétt).
Yfirmaðurinn hennar Gunnhildar rak höfuðið inn á skrifstofuna og bauð mig velkominn heim og sagði Gunnhildi að taka sér frí það sem að væri eftir af deginum. Hugsa sér að hafa svona yfir mann priceless. Því næst fórum við að ná í krakkana, Friðrika hljóp bara beint í fangið á mér og spurði svo „hvað ert þú að gera hérna“ en knúsaði mig alveg út í það óendanlega. Þegar að við komum að sækja Jakob þá var hann eitthvað að klifra með honum Ara, svo loksins þegar að hann sá mig þá hljóp hann í fangið á mér en í mjög stutta stund því ég átti að sjá allt það nýja dót sem að hann gat klifrað uppá og já eitt þak.

En það er óhætt að segja það að það er gott að vera kominn heim.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ohh æðislegt :) Mikið hefur Gunnsóin mín verið ánægð að sjá manninn sinn. Æðisleg svona skemmtileg surprice.

kv. M

SGFJ sagði...

Já þetta var gamann sérstaklega því að það er frekar erfitt að koma henni á óvart því hún sér yfirleitt í gegnum svona.

En María ertu svo að koma í mai?

Nafnlaus sagði...

Neeee, held ég verði að hætta að láta mig dreyma um svoleiðis lúxus. Í besta falli verður tekinn bústaður á þetta :)

En takk samt fyrir að taka vel í dæmið.

kv. M

Nafnlaus sagði...

OOOOO Siggi þú ert ótrúlegur, geturðu ekki kennt mínum manni eitthvað svona ; ) Honum myndi aldrei detta neitt svona í hug. En þetta með surprise hjá þér fer nú að verða nokkuð grunsamlegt, og ég held að næst þegar þú kemur heim á " réttum" tíma verði bara nokkuð mikið surprise ; ) Hafið það gott elskurnar.

Kveðja Heiðrún