laugardagur, mars 21, 2009

Fíknó hringdi

Jæja þá er maður búinn að fleyta sér áfram á youtube myndböndum helst til lengi en einhvern veginn þá hef ég ekki haft neitt um að skrifa hérna. Reyndar hef ég byrjað nokkrum sinnum á einhverjum pistlum en svo einhvern veginn hafa þeir ekki verið alveg það sem að ég hafði viljað skrifa um. Listamenn kalla þetta ritstíflu en ég veit ekki alveg hvað ég á að kalla þetta kannski bara stíflu. En ég er enn hérna á klakanum og kann því bara ekkert allt of vel sakna fjölskyldunnar alveg hrikalega mikið. Reyndar er búið að vera ágætt að gera í vinnunni svo að þá líður tíminn hratt. Svo hendi ég mér í Laugar til að hreyfa mig, og ég get nú sagt ykkur það að er að ég væri í mannfræði og þyrfti að skoða einhverja menningu þá mundi ég fara í Laugar. Það er svo hrikalega fyndið að strákarnir eru að greiða sér og etja vax í hárið fyrir framann spegilinn áður en að þeir fara að lyfta, og stelpurnar virðast mála sig áður en að þær koma í salinn. Og svo er mikill meirihlut sem að er bara að spjalla inn í sal og jú tekur kannski aðeins í lóðin en passa sig að svitna ekki. Mér finnst þetta oft á tíðum vera bara eins og félagsmiðstöð. Og reyndar læt það fara alveg hrikalega mikið í taugarnar á mér þegar að menn eru bara að spjalla í vélunum sem að ég er að fara í. Reyndar er ég heldur betur byrjaður að færa mig upp á skaftið og bið menn hvort að ég megi ekki taka inn í á meðan að þeir hvíla. Og þannig var það um daginn að það voru tveir menn sem að voru alltaf á undan mér, Held svei mér þá að við séum bara með sama prógrammið nema hvað að þeir voru örugglega að hittast í fyrsta skipti í langan tíma og töluðu alveg óskaplega mikið samann. Og í fjórum tækjum fékk ég að skjóta mér inn í þeir hafa örugglega haldið að ég væri bara að elta þá. Nema hvað að þetta hefði nú verið bara allt í lagi ef að þetta hefðu verið bara svona almúgi en ég komst ekki að því fyrr en að ég var að vera búinn að æfa þennan dag. Að maðurinn sem að var á undan mér var Bjössi í World class, ég hélt að hann væri með sítt hár en hann er greinilega orðinn stutthærður. En svo hugsaði ég með mér að ef að einhver vill láta fólk fara í gegnum stöðina þá er það hann.

En mig langar að segja frá góðu gríni sem að tókst svona hrikalega vel en þannig er mál með vexti að síðan að ég kynntist Gunnhildi þá hef ég alltaf verið að grínast í henni Ástu tengdó ég hef veriða að hringja og þykjast vera einhver annar en ég er og tekist ansi vel til annað slagið þó sérstaklega þegar að ég hringdi sem meindýraeyðir. En allavega þá er hún ´Ásta nú ekkert mjög tækjaóð en hún á þó gsm síma svo að systur hennar geti náð í hana. Og fannst mér það einu sinni hrikalega fyndið að skipta nafninu mínu út fyrir t.d Davíð Oddsson og hringja svo í hana til að sjá á henni svipinn. Og trúið mér ég er búinn að setja mörg nöfn inn í staðinn fyrir mitt nafn. Svo síðasta sumar eða þar síðasta sumar þá setti ég inn Fíkniefnadeild lögreglunar eða fíknó man það ekki alveg og er það búið að vera ansi lengi inn í símanum hjá henni. Og þar sem að hún er nú ekki mikið að fikta í símanum þá hefur þetta bara veið inn í símanum og alltaf þegar að ég hringi þá kemur þetta upp. Svo var það um daginn að hún er í vinnunni og bregður sér eitthvað frá en gleymir símanum í vinnunni. En þegar að hún kemur aftur þá segir Ásta sem að er að vinna með henni „heyrðu Ásta þú gleymdir símanum og hann hringdi og ég ætlaði að svara fyrir þig en ég þorði því ekki þar sem að þetta var Fíkniefnadeild lögreglunar sem var að hringja“. Ég verð að segja að ég nánast dó úr hlátri en þakkaði fyrir að þetta var ekki Linda Rós frænka sem að sá þetta því ég veit að hún hefði farið yfir um af stressi. En gott djók og nú held ég að ég fari nú að laga nafnalistann hjá tengdó því maður veit aldrei hver getur séð þetta.
En j´ja best að reyna að fara að sofa í hausinn á sér þar sem að ég ætla að reyna að troða hrikalega miklu inn í þessa helgi, eða réttara sagt reyna að klára allt sem að ég er búinn að lofa. Svo svona rétt í lokinn þá hvet ég alla að henda inn einhverju commenti eða þeir sem að eru með lyklaborð eða bara hringja í mig og lesa mér commentið.

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæhæ, þar sem ég er með lyklaborð og er að lesa þetta þá ætla ég að kommenta! takk fyrir skemmtilegan pistil, ég veit ekki hvernig Ásta heldur endalaust ró sinni yfir þér!
Sjáumst svo (ekkert vonandi, bara sjáumst) næstu helgi í BBQ!
kv. Hanna panna

Nafnlaus sagði...

Þú leggur tengdamóður þína í einelti Sigurður Andri !!














:)

M

Valborg S sagði...

Ætli Bjössi í World Class hafi ekki haldið að þú værir geðveikt að sýna þig fyrir honum :D

SGFJ sagði...

Já Valborg ég var nú ekki búinn að hugsa þetta svona.

Nafnlaus sagði...

Siggi minn þetta með tengdó er hrikalegt, hann Gunnar djókar nefnilega endalaust í mömmu líka, en stundum er bara hægt að fara yfir strikið:-) Mamma hefur sko alveg farið í fýlu útí Kallinn. Vertu bara feginn ef hún hleypir þér inn aftur!

ha,ha,ha góða ferð heim í kotið:-)

SGFJ sagði...

Nei ég er ekki að leggja hana í einelti, það er ara svo skemmtilegt að plata hana því hún tekur því alltaf svo vel.

SGFJ sagði...

Já Ástrós tengdamóðir mín er ekki þessi týpa sem að fer í fýlu. Og ég hef gengið altof oft yfir strikið en henni finnst það bara fyndið á endanum. Og það þýðir ekkert fyrir hana að læsa mig úti ég er með lykla. HAHA já en takk Ástrós

Nafnlaus sagði...

Ætlaru ekkert að fara segja okkur frá surprice-inu?

kv. M

Nafnlaus sagði...

held að Ásta ætti að fá sér lás á símann.....
kveðja,
Valla