Íslendingar eru ekkert sérstaklega kurteisir og ekki ætla ég að fara að segja að Danir sé eitthvað úper kurteisir. En þeir hafa þó vinninginn yfir okkur Íslendingum, Veit ekki hvað það er sem að veldur að Íslendingar eru ekki kurteisari en raun ber vitni. Ég fór að spá í þetta á föstudaginn þegar að tvær persónur sem að ég þekki ekki neitt sögðu mér hve kurteis þeim þótti ég vera. En ekki þótti mér ég vera neitt sérstaklega kurteis en ég sagði nú bara svona eins og að maður á til í DK í lok samræðna rétt fyrir heldi „og eigðu góða helgi“. Þetta er eitthvað sem að maður heyrir meira að segja hjá hafnfirðinginum á horninu í köben. En íslendingar þeir varla segja góðan daginn áður en að afgreiðsla hefst í þessum búðum sem að ég hef heimsótt hér á landingu gráa. Kannski er kreppan að fara með alla en kurteisi kostar bara ekki neitt.
Jæja en að öðru ég keypti mér kort í World class þegar að ég kom hingað og hef notað það bara nokkuð vel. Nema að ég lenti í ógeðslegu atviki í sturtunum. Ekki láta hugarflugið fara af stað heldur er ég að fara inn í sturturnar og ég var á svona annatíma (eitthvað sem að ég geri aldrei aftur). Nema hvað að það er maður sem að rekst utan í mig og það eitt og sér var frekar ógeðslegt. Ekkert verra en að rekast í nakinn mann. Og svo til að bæta gráu ofan á svart þá var hann með Sollu stirðu handklæði. Ekki það að mér finnist Solla stirða eitthvað asnalega en bara aðstæður buðu ekki uppá sollu handkl´ði. En svo var ég í World class á ekki eins miklum anna tíma og sá manninn aftur og hann ætlaði að fara að heilsa mér. Ég náði rétt svo aðlíta niður og labba út í sal en mér var svo brugðið að ég labbaði alsber fram og upp allan stigann og áttaði mig ekki á því að ég var alsber. Fyrr en að Arnar Grant sagði við mig að ég þyrfti að vera klæddur. Okay okay síðustu tvær setningarnar eru ekki réttar sorry ég er ekki alveg úti á þekju.
En langaði bara að henda inn raunum útlendings í heimalandi sínu.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Já ástin mín sem betur fer er tad bara annad okkar sem labbar út úr sturtuklefum nakid !!!!
Skrifa ummæli