Við vorum stödd heima hjá Arnari og Lizzý í mat þegar að talið berst eitthvað að þrítugsaldrinum. Ég geri oft grín af því þegar að ég er með fólki sem að er eldra en ég og segir „æji hann er á aldri við okkur“ þá er það spurning hvort að viðkomandi sé á aldur við mig eða þau sem að eldri eru.
En við vorum að tala um þriðja tuginn og ég er með svona smá plan sem að ég ætla að ná áður en að ég verð þrítugur. Og þá segir Heiðrún þegar að við erum að ræða það „hvað eru aftur margir mánuðir þangað til að þú verður þrítugur Siggi“. Mér bregður svona smá því Heiðrún veit að ég er jafngamall Margréti systur hennar. En ákveð nú samt að segja henni að ég sé fæddur áttatíu og eigi því nokkur ár í að verða þrjátíu. En nei það var rétt hjá Heiðrúnu ég get farið að telja þetta í mánuðum. Því að það eru aðeins 16 mánuðir þangað til að ég verð þrítugur.
Ég verð sko heldur betur að fara að spýta í lófana ef að markmiðið á að nást því sextán mánuðir eru svo sem ekkert lengi að líða. Takk Heiðrún fyrir að koma mér í skilning um að ég er alveg að ná þessum merka aldri
laugardagur, febrúar 28, 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Og hvað er planið Sigurður, hvað þarftu að gera svona mikið sem að þú getur ekki gert eftir 30?
Kveðja með "súkkulaði og möndlukaffi"- bolla í hendi á Solbakken.
Planið er að vera kominn í besta líkamlega form sem að ég hef verið í og það fyrir þrítugt. Og að miða það við þrítugt var eitthvað svo langt í burtu þangað til á föstudaginn.
Sorrý kallinn minn, þetta er bara svona, tíminn líður hratt á gervinattaöld.... en við erum í raun bara eins gömul og okkur finnst við vera. Mér finnst ég til dæmis bara svona 27 ennþá, ekki að ég sjái mikinn mun á því að vera 27 eða 30 svo kannski finnst mér ég bara vera 30 eftir allt saman. Stóð mig reyndar að því í dag í vinnunni að vera spurð að því hvað ég væri gömul, og sagði "rúmlega þrítug" hvað er það! Ég er ný orðin þrítug og strax farin að segja rúmlega. Þannig að ég hef greinilega ekki miklar áhyggjur af þessum aldri.Ætli ég verði bara ekki rúmlega þrítug í nokkur ár í viðbót. Jæja nú er ég bara farin að rugla. En allavegana bara go for it, þú hefur enn nokra daga til stefnu og það væri svo sem ekkert verra að vera í sínu besta líkamlega formi 35 eða 40 ára. En þú hefur engu að tapa, svo haltu bara áfram að æfa.....
Gleymdi að segja hver var að skrifa áðan en það var bara ég Heiðrún ; )
Skrifa ummæli