Fjölskyldan gerði sér glaðan dag í gær og skelltir sér á skauta eftir vinnu og kenndi Friðrika okkur réttu hreyfingarnar. Jakob var ekki alveg með jafnvægisskynið í lagi á svellinu ekkert frekar en pabbi hans. Gunnhildur skautaði um eins og að hún hafi aldrei gert neitt annað með smá hnökrum en samt sem áður var hún hrikalega flink. En Friðrika bara höfuð og herðar yfir okkur hin og hefur hún náð alveg ótrúlegum tökum á skautunum á þessum þrem skiptum sem að hún hefur farið á skauta. Og af þessum þrem skiptum eru einungis tvö í ár hitt skiptið var í desember 2007.
En það er nú bara þannig með hana Friðriku að hún er fljót að ná tökum á því sem að hún tekur sér fyrir hendur.

Fannst þessi svo flott að ég varð að setja hana inn

Jakob setti upp skeifuna sína frekar stoltur

Þetta reyndi á vöðva sem að ég vissi ekki að voru til

Það var einhver leiðinda þoka í gær þannig að þessi er smá óskýr

Hvert hefur tíminn flogið
Engin ummæli:
Skrifa ummæli