mánudagur, janúar 19, 2009

Hvað er að frétta eiginlega

Helgin var þægilega róleg Friðrika fór í ballett í konunglega ballettskólanum eins og hinn laugardaginn. Jakob og Gunnhildur voru heima á meðann en þegar að ballettinn var búinn fór Friðrika í heimsókn til vinkonu sinnar út í Sydhavn.
Þá var farið og sótt hjólið sem að Gunnhildur var að kaupa, þvílíkt flott hjól enda búið að skoða mikið hvað er í boði og á endanum keypti hún kildemos Classic með sjö gírum og þotuhreyfli. Þannig að í morgunn á þeystist hún á hjólinu í vinnuna.
Á sunnudaginn bauðst Friðriku að fara með vinkonu sinni og móður hennar á skauta og ákvað Siggi að skella sér með þar sem að hann hélt að Friðrika væri óörugg á skautunum. Enda ekki við öðru að búast þar sem að hún hefur bara einu sinni áður farið á skauta og það var í fyrra. En eins og við var að búast þá var Friðrika orðinn fær á svellinu eftir 3 mínútur í skautunum. Og gat þá Siggi bara fengið sér kaffibolla og fylgst með. Friðriku fannst það nú frekar mikið frat að pabbi hennar skildi ekki skella sér í skauta en hann lofaði því að hann myndi fara í skauta næst. Þá var náttúrulega spurt hvenær yrði farið aftur og það er búið að ákveða að fjölskyldan taki með sér nesti og fari í vikunni þar sem að svellin hér í köben eru opin til 19:00.

En annars er það að frétta að Siggi fékk bara góðar fréttir úr vinnunni og það er allt klappað og klárt og er búið að panta skipsfar og mun Siggi leggjast að Sundahöfn þann 8 feb um miðnætti. Þetta verður lífsreynsla að fara með skipi til Íslands en hann vill frekar fara með skipi en express. Allavega eins og að síðasta upplifun var. Eina sem að hann er að spá ó er hvort að það sé einhver sér til dægrastyttingar í Laxfossi. Ef ekki þá bara leggst hann á árarnar.




2 ummæli:

Heiðrún og Runólfur á Indlandi sagði...

Til hamingju með nýja hjólið, mæli eindregið með Kildemose, þau klikka ekki. (Alla vegana ekki mitt).

Kveðja frá einni sem fer alveg að koma í heimsókn, bara 8 dagar

SGFJ sagði...

Hlökkum til að sjá þig Heiðrún