laugardagur, nóvember 15, 2008

Laugardagur aftur og jólin að koma

Þá er vikan búin aftur, finnst eins og hún sé nýbyrjuð. Þessar vikur og sólahringar eru ekki alveg að duga mér þessa dagana, kannski er ástæðan sú að það er hrikalega mikið að gera hjá mér í skólanum og ætli því sé ekki um að kenna að ég er í lélegum hóp þessa önnina. Hópinn minn skipa þrír skiptinemar sem ekki geta gert eina skýrslu án þess að það þurfi að hjálpa þeim það mikið að mér líður eins og þetta sé mín skýrsla. Þannig að ég geri nánast allar skýrslurnar. Svo er það einn englendingur sem að er búinn að búa hérna í 7 ár hann er meira að hugsa um að fara að vinna sem arkitekt þegar að hann klárar námið og þ.a.l finnst honum alls ekki skemmtilegt að gera skýrslur og ef að hann gerir einhverjar skýrslur þá eru þær þunnar og alls ekki nægilega góðar til að skila af sér. Þannig að ég yfirleitt umskrifa skýrslurnar hans. En honum finnst gaman að hanna og teikna og það er það eina sem að hann gerir,og þar sem við erum að læra á nýtt teikniforrit sem að heitir Revit þá tekur smá meiri tíma að teikna en áður, og ég næ ekki að setja mig inn í Revit fyrir skýrslugerð. Og eins og við er að búast þá er ég kominn með magasár við tilhugsunina að við séum að skila 5.janúar.

En jæja þýðir ekkert að kvarta ég meina ég læri þá bara þeim meira um lögfræði,fjármálafræði,varmareikning,reglugerðir og burðarþolsreikninga.


En svona að heimilislífinu sem að gengur sinn vanagang. En miða við myndirnar hér að neðan mætti halda að það væri einhver afsláttur á strípum á næstu hárgreiðslustofu. En svo er ekki því þ.e.m.m.v (þannig er mál með vexti) að ein hugmynd að jólagjöf í ár til hennar Friðriku var svona strípuvél sem að fæst í Toys'R'us nema hvað að um daginn fengum við bækling frá þeim sem að hafa verið skoðaðir frekar mikið. Þegar að frökenin sá strípuvélina þá ákvað hún að safna sér fyrir henni og í staðin fyrir að kaupa sér mat í skólanum eins og hún má á miðvikudögum þá vildi hún frekar fá peninginn 30kr. Hún átti smá pening fyrir og svo er hún búin að vera að pikka upp peninga hér og þar og er engin mynt of lítil til að fara í veskið. Því brauðmynslur eru líka brauð ekki rétt. Nú í gær eftir 2 vikna söfnun var hún komin með 150 kr fyrir vélinni og var förinni heitið í Fiskitorvið og viti menn Friðrika keypti síðustu vélina. Þannig að allir þeir kollar sem að vilja strípur fá strípur. Jakob er hæst ánægður með þetta framtak systur sinnar því fyrir honum að vera með bláar og rauðar strípur er bara ROKK.











Svo var þetta spurning um hvað rappararnir segja og Jakob sýnir okkur það



Hvernig veit maður að jólinn eru að koma? Jú þegar að jólabjórinn kemur.


5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þessi börn ykkar eru bara snillingar... enda ekki við öðru að búast þegar litið er til foreldranna (ég er að safna prikum ;o) En án gríns þá hélt ég að ég myndi míga niðrúr þegar ég las samræðurnar sem hafa farið ykkar á milli í síðustu bloggum.

Nafnlaus sagði...

Hí,hí mig langar alveg í bleikar strípur...þau eru svooooo sæt.Kveðja og knús til ykkar allra, alltaf gaman að skoða myndir hjá ykkur.kv. Ástrós og strákarnir

SGFJ sagði...

Já kiddý amræðurnar taka yfirleit óvæntar stefnur á þessu heimili.(jú þú fékkst prik)

Ástrós þú ert velkomin í strípur þú fengir það bara alveg ókeypis en það versta er að þær eiga að fara við fyrsta þvott en ég get sagt að það er akki raunin.

Nafnlaus sagði...

Hæ þið öll, vildi bara kvitta fyrir mig. Skoða ykkur alltaf reglulega. Er ekki von á ykkur bráðum til landsins ? Eruð þið nokkuð hætt við að koma um jólin?
Ástþór Ingi spurði um daginn hvenær hann fengi eiginlega að leika aftur við Friðriku. Finnst þetta óþarfa langur tími á milli hittinga.

Miss you

Kveðja fyrrum frú 47 ;)

SGFJ sagði...

Jú Heiðrún við komum 18 des til landsins og það er ekki spurning um að við þurfum að hittast.