Nei við erum ekki flutt eitthvað langt í burtu þar sem að er sóla og ekkert internet. Málið er bara að ritari þessa bloggs er búinn að vera í prófatörn sem að er yfirstaðin í bili og gekk bara vel.
Ekki mikið gerst síðustu dagana þar sem að ég er að koma heim úr skólanum og nánast sofna strax vakna morguninn eftir seint og úrillur því mig var að dreyma skólalærdóminn alla nóttina. Veit ekki af hverju en ef ég er stressaður yfir einhverju þá dreymi mig það, frekar fúllt að vera að læra alla nótina og vakna svo og þurfa að byrja aftur á því. Einnig þá hef ég verið að læra á nýtt teikniforrit sem að heitir Revit og það er ekki til að bæta á stressið. Ég hef einmitt haft ákveðnar skoðanir á Revit kvikindinu sem að eru að breytast í mjög jákvæðar skoðanir. En nóg um skólann í bili.
Í gær fórum við á lokahóf í Karens minde þar sem að Friðrika er í myndlist og Capoera, hún var sem sagt bæði með myndlistasýningu og Capoera sýningu það þarf ekki að taka Það fram að hún stóð sig með eindæmum vel. Þessi stelpa er ótrúleg hún er í myndlist og Capoera á þriðjudögum og miðvikudögum. Sem að er nú kannski alveg nóg fyrir sex ára barn en henni finnst það ekki nóg nú langar hana að fara að læra spænsku og á gítar.
Jakob var í heimsókn hjá Aksel vini sínum í gær þetta er strákur sem að er með honum á leikskólanum. Og þegar að Gunnhildur náði í hann þangað þá sagði mamma hans Aksels að Jakob væri einstaklega hlýðinn og skemmtilegur strákur. Vá hvað er alltaf gaman að heyra svona um börnin sín manni finnst bara eins og að maður ætti kannski bara að henda sér í að skrifa bókina „Hvernig á að ala upp barn“ DJÓK.
Annars er bara allt gott hérna Gunnhildur er alltaf að vinna og líkar vel hún er reyndar að breytast í algjöran dana sem að er alls ekki slæmt en t.d núna er hún komin í kuldaskó eins og allir danir eru í helt að þetta séu sérdanskir skór.
Eitt að lokum
Ég var í búð með Friðriku í gær og labba svona á undan henni til að ná í taco sósu en á meðan er hún að skoða jólaskraut. Ég ákveð að bregða á létta strengi og þykjast vera búða maður og breyti röddinni í búðamannaröddina.
Búðamaðurinn: góðan daginn unga stelpa hvað heitir þú
Friðrika horfði á mig frekar hissa með stóru augun og segir
F: hættu þessu pabbi ég er dóttir þín hún Friðrika
Verð að viðurkenna að mér leið smá eins og hálfvita.
fimmtudagur, nóvember 27, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli