miðvikudagur, október 15, 2008

„Ég á ekki von á því,“ segir Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, spurður hvort til standi að greiða 500 milljóna evra lán sem bankinn tók og er á gjalddaga í dag.

Fyrrverandi stjórnendur Glitnis hafa greint frá því að þeir sáu ekki fram á að geta greitt þetta lán. Búið var að loka á aðgang bankans að lausafé. Fyrir 20 dögum var því tekin ákvörðun um að ganga á fund Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra og biðja um lán til þrautavara. Hröð atburðarás fór af stað sem endaði á því að á mánudeginum 29. september ákvað ríkið að leggja til bankans 600 milljónir evra og eignast 75% hlut.

Þetta er frétt á Visir í dag sem að ég stoppaði aðeins við þar sem að bankinn bað um lán uppá 500 mil evra en endar með að selja 75% hlut fyrir 600 milj evra. Og þar með var hrundið af stað atburðarás sem að engann endi virðist hafa.

Engin ummæli: