miðvikudagur, október 15, 2008

Fréttir og þó fyrr hefði verið

Ekki þýðir að tapa sér í krepputali og fréttum þar sem að maður hefur jú varla við að lesa fréttir varðandi þetta ástand. Sem betur fer erum við ágætlega stæð Siggi náði að millifæra áður en að kreppan skall á og Gunnhildur fékk fyrsta launaumslagið um síðustu mánaðarmót. Þannig hafið ekki áhyggjur af okkur þó svo að við séum hætt að tala íslensku á strikinu þá er það bara til að sleppa við að útskýra fyrir dananum hvað gerðist og af hverju.

Ég verð nú að viðurkenna að ég var orðinna ansi áhyggjufullur um að ég kæmi ekki heim í praktík til VSÓ eins og var búið að tala um. En ég var nú kominn með plan B en bara svona lauslegt. Ég ákvað að hringja í yfirmann minn hjá VSÓ og kanna hvernig landið lægi og hann var nú ekki af baki dottinn heldur sagði hann að ég væri meira en velkominn og að þeir væru nú eiginlega að búast við mér frekar en hitt. Þar var svona smá fargi létt af mínu hjarta.
En einhvern veginn þá er ég náttúrulega smá kvíðinn að fara frá fjölskyldunni aftur og það í 10 vikur þar sem að ég var heima í allt sumar og sá Gunnhildi ekki neitt en ég fékk sem betur fer krakkana senda heim sem bjargaði sumrinu. Og einnig til að það var hægt þá hjálpaði fjölskyldan hennar Gunnhildar mikið og er ég ævinlega þakklátur fyrir að þetta gat gengið allt samann upp.
Nú þegar að praktíkin er komin á hreint þá eru alltaf einhverjir sem að spyrja afhverju ertu að fara heim að vinna fyrir verðlausan gjaldmiðil“. Og þeirri spurningu langar mig bara að svara hér og næst þegar að einhver spyr mig þessara spurninga þá bendi ég á bloggið.

Ástæða þess að ég ætla heim að vinna í febrúar er sú að ég er líklegast í skemmtilegasta starfi sem að ég hef verið í ever hjá góðu fyrirtæki. Ég er kominn inn í allt samann hjá VSÓ og þarf ekki að vera nýji maðurinn ég bara geng inn og fæ verkefni og byrja að vinna. Við eigum enn íbúð heima og við stefnum á að flytja heim einhvertímann þannig að peningurinn getur bara verið heima og er þ.a.l ekki verðlaus. Einnig þá er hann Siggi hennar mömmu mikið veikur og vill ég vera þeim innan handar með eins mikið og ég get mögulega. Svo togar líka smá að vera í pönnukökuveislum og mat í Kríuásnum. Einnig þá er ég búinn að lofa nokkrum í fjölskyldunni að grípa í smíðavinnu sem að verður bara gaman svona aðeins að snerta hamar aftur.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já og svo gæti líka verið að það sé einhver á íslandi sem langar að fá þig heim í smá stund........... ekki líklegt, en gæti verið ;)
Kv Heiðrún Harpa

SGFJ sagði...

Já segðu