laugardagur, apríl 28, 2007

Sólinn er kominn að kveða burt snjóinn

Í sól og sumaryl

Vá hvað þetta er búin að vera góður aprílmánuður það eru búnar að vera hitabylgjur eftir hitabylgjur. ég er búinn að setja persónulegt met í sólbruna því aldrei hefur mér tekist að brenna í apríl mánuði. Krakkarnir hafa nú alveg sluppið við bruna Jakob brann smá á eyrunum en ekkert sem heitir. Í gær voru 26 gráður á mælinum sem að verður bara að teljast ásættanlegt. Nú væri ég nú alveg til í að fá smá rigningartímabil því gróðurinn er farinn að æáta á sjá já og svo líka nenni ég ekki að sitja yfir einhverjum verkefnum þegar að veðrið er svona gott. Ég er að drukkna í verkefnum en þesi sól er að eyðileggja allt fyrir mér.

Friðrika fer í síðasta skipti á leikskólann á mánudaginn því hún er að byrja á frístundarheimili sem að er í skólanum sem að hún byrjar svo í í ágúst. Hún er búinn að vera í skólagrúbu í leikskólanum að læra stafi og ýmislegt. Jakob fer svo 4.mai á børnehave sem að er bara svona eldri deild. Hann er búinn að vera á svokallaðri vuggustue en hann er nú samt búinn að verja meiri tíma á hinni deildinni með systur sinni heldur en nokkur tímann á vöggustofunni. Enda meiri gauragangur þar sem að Jakob er frekar hrifinn af. En nú fer strákurinn bara að skríða í þriggja vá hvað tíminn líður hratt. ég spurði hann hvað honum langaði nú í afmælisgjöf því var auðsvarað "fult af byssum og fullt af sverðum" það er nátturulega bara auðsótt mál ég meina henn er nú strákur.

Engin ummæli: