Eftir fyrstu hlustun á nýjustu afurð Bjarkar Volta þá er diskurinn ekki beint að hitta í hjartastað. Þetta er frekar spes sem að mátti alveg búast við því diskurinn er ekki eins og neitt sem að ég hef heyrt áður. Þetta er klárlega ekki besti diskurinn hennar Bjarkar en vonandi er hann betri í annarri eða þriðju hlustunn. Ég var reyndar búinn að búa mig undir eitthvað sórkostlegt því það eru margir góðir tónlistamenn sem að koma að þessum disk með henni. Ég mundi gefa þessum disk 3 af 5
3 ummæli:
7 dagar þangað til ég kem og knúsa ykkur fallegu börn.
Hlakkað rosalega mikið til
uuu en er ekki alveg vika í að diskurinn komi út?? Stundar þú kannski ólöglegt download?!
Ekkert ólöglegt ég er í aðdáandaklúbb Bjarkar þar að leiðandi fæ ég að hlusta ásamt elítunni.
Skrifa ummæli