Jæja ekki mikið verið skrifað hérna inn enginn afsökun fyrir því önnur en miklar annir bæði heima fyrir og í skólanum.
Það er margt búið að gerast. Nú á þriðjudaginn hjólaði ég (SAS) næstum því Kim Larsen niður ég fattaði ekki hver þetta var fyrr en of seint. Veit ekki hvort að ég hefði beðið hann um eiginhandaráritun ef að ég hefði fattað hver þarna var á ferð. En ef að ég hefði átt almennilegan gsm með góðri myndavél þá hefði ég mögulega reynt að ná af honum mynd. Annars er ég byrjaðut að sjá að það væri gott að eiga svona góðan síma. Ég hef aldrei séð þörfina fyrir að eiga síma sem getur tekið myndir,video,mælt desibil,mælt lux og hvaðana eina. En þegar að ég var að kenna Robert efnafræðikennaranum mínum íslenskr orð núna í vikunni þá hefði ég viljað vera með síma sem að ég hefði getað tekið það upp. Því ekki var ég að kenna honum falleg orð. Ég held bara að það sé skylda að kenna útlendingum ljót orð svona fyrst um sinn. En annars er hann mikill áhugamaður um Ísland og langar að læra íslensku einnig hefur hann áhuga á að sækja landið heim. Sérstaklega þegar að ég var búinn að segja honum fré öllu þessu helsta s.s Geysi,Perlunni,Þingvöllum og líka að maður getur farið upp að dyrum hjá forsetanum okkar. Og jafnvel á góðum degi mætt honum á förnum vegi. Þetta finnst honum ótrúlegt að við séum svona líbó.
En hvað um það því verður ekkert breytt að Ísland er fallegt land og þaðan kemur góður matur.
En þá að alvarlegri fréttum því ég er búinn að vera á Autocad námskeiði nú í þrjár vikur. Það er búið að vera bara frábært því þetta er flott forrit sem jú ég kem til með að vinna með kannski alla mína ævi. EN ég sit við hliðina á Tobiasi sem að er svona ofur tölvari. Hann leysir öll vandamál sem að við lendum í með tölvurnar okkar. Þegar að maður er að læra svona vel á Autocad þá fer maður annsi langt inn í forritið. Til að gera allskonar stillingar sem að nýtast manni þegar að alvöru verkefnið byrjar. Nema hvað að Tobias er alltaf svona tveim til þrem skrefum á undan kennaranum svo allt í einu varð skjárinn bara svartur hjá honum og hann gat hvorki opnað Autocad né tengst netinu. Ég var ennþá á netinu og að teikna í autocad og Tobias var eitthvað að vndræðast. Skipta um tölvu reyna að skrá sig þar inn en allt kom fyrir ekki allar tölvur sem að hann snerti hrundu. Svo kom hann til mín og bað mig að skrá mig út og aftur inn sem ég gerði. En vitrir menn mína talva hvurndi lóka svo og allar tölvur í stofunni. Sem betur fer var tíminn að vera búinn þannig að þetta skipti kannski ekki máli. En þegar að við komum í skólann þá fengum við skilaboð frá IT (strákunum sem að gera við allar bilanir hér í skólanum) að þeir hafi verið fram á nótt að laga þetta. Svona fer þegar að maður er að fikta eitthvað í tölvunum sérstaklega þegar að maður veit ekki hvað maður er að gera. Þess vegna reyni ég að gera sem minnst að því að fikta þí þessu en ég þekki einn mann á Íslandi sem að fiktar allt of mikið og þar að leiðandi er tölvan alltaf í einhverju fokkki. Viti þið hver það er? Þið sem að hafið áhuga þá er villumeldinginn hér að ofan.
Annars er allt gott að frétt að heiman í gær var farið íFields að kaupa Öskudagsbúninga á krakkana. Jakob ætlar að vera Turtles og Friðrika ætlar að vera prinssesa með kórónu og í háhæluðum skóm og öllu. Vonandi að hún bara ökklabrjóti sig ekki. Eftir Fields ferðina var ákveðið að hafa kósý og pönruðum við pizzu og keyptum ís. Jakob borðaði alveg fjórar sneiðar ég hef bara ekki séð hann borða svona mikið ever. Friðrika var líka dugleg að borða eins og alltaf. Svo var kominn að eftirréttinum sem að var einn líter af Paradís við borðuðum hann bara beint uppúr ílátinu. Friðrika tók það að sér að klára ísin. Ég er svo ánægður að við eigum aldrei ís sem að þarf að henda vagna þess að hann er orðinn of gamall þökk sé Friðriku.
Gunnhildur er alltaf að vinna go einnig er hún hætt að reykja já sko mína. Hún reyndar stelst reyndar í eina og eina þegar að við erum að drekka danskt gos það má víst.
Það er allt brjálað hér vegna þess að það er að fara einhver danskur klæðskiptingur fyrir hönd dana í jútóvisíon. Mér gæti ekki verið meira sama. Svo er það krón prinsinn sem að er að vinna í því að fá ólympíuleikana hingað 2024. Og sitt sýnist hverjum. Mér finnst þetta reyndar kosta allt of mikið og ekki vera fótur fyrir þessu eins og staðan er í dag. En ég er ekki krónprins sem að hefur ekkert nema tíma til að hugsa. Vildi samt að ég væri það því þá gæti ég bara sofið út og ferðast eins og mig lysti og ekki þurft að hafa áhyggjur af neinum peninga erfiðleikum. Það væri ljúft.
Þá er ég farinn í helgar frí því það er ekki skóli á morgun því á morgun eru 1000 ár frá því að það var byrjað að brugga bjór í danm0rku þannig að allir ega frí á morgun. Svo á föstudaginn er 1000 og frá því að fyrstu timburmenn eftir bjórdrykkju voru þannig að þá er líka frí
2 ummæli:
Oooohhhhhh akkuru á ég ekki heima í Danmörku? Þetta hljómar eigilega alveg eins og draumalandið sem ég skapaði í hausnum á mér.
Jæja Siggi minn ég held að það sé ekki eins auðvelt og þú heldur að vera krónprins. Hitta fullt af leiðinlegu fólki og alltaf þurfa að haga sér vel þannig að ég myndi aldrei endast í einn dag hehe.
Er sammála þér með ólimpíuleikana það er alveg hægt ð eyða peningunum í eitthvað skinsamlegra.
Hef aldrei heyrt um þennan frí dag sem þú varst að tala um en hvað veit ég, alla vegn var skóli hjá mér, too bad.
En gamli við sjáumst til fastelavns bolle bökunar um helgina það verður stuð er viss um það....
Heyrumst frú 113
Skrifa ummæli