Jæja hvað getur maður sagt fimm ár, vá fimm ár 1825 dagar 43800 klukkutímar. Þetta er ekkert smá fljótt að líða allt saman. Finnst eins og ég hafi bara verið í fyrradag uppá Landspítala ungur strákur að eignast sitt fyrsta barn. 16. janúar 2002 er dagur sem að ég á aldrei eftir að gleyma. Þegar að ég leit á stúlkuna mína og hugsaði vá hvað þetta er fallegt barn. Ég átti ekki til orð og jafnvel að það hafi eitt tár læðst með. Vikurnar og mánuðirnir eftir voru nú reyndar ekki auðveldir því Friðrika fékk svo mikið í magan og lá mikið andvaka. En mér er alveg sama um allar andvökunætur, bleyjuskipti, Pelahitanir á næturnar og einnig er ég næstum því tilbúin að fyrirgefa þegar að hún pissaði á mig. Því að ég á heilbrigt barn sem að er svo glöð og bara frábær í alla staði.
Friðrika mín til lukku með daginn í gær
(Þið sem að gleymduð afmæli dóttur minnar mér þætti vænt um að þið munduð ekki hafa samband við mig eða fjölskyldu mína aftu. Reyndar er ein undantekning á þessari reglu og þið þurfið að komast að því hvað það er)
3 ummæli:
Til hamingju með 5 ára prinsessuna !
Kæra Friðrika til hamingju með afmælið.
Siggi minn
Vonandi verður mér fyrirgefið þessi yfirsjón að hafa gleymt afmælinu í þetta skipti, ég mundi nú eftir Gunnhildi og ekki gleymi ég þér. Er ekki afmælið þitt í september. Bara að grínast júní er það
kveðja
Krissa
Elsku fallega frænka mín
til hamingju með afmælið þitt, ofboðslega er fínt rúmið þitt algjört prinsessurúm
knús og kossar
Tinna frænka
Skrifa ummæli