
Jæja þá held ég að ef að ég væri atvinnumaður í einhverri íþrótt þá væri minn ferill á enda. Ég á að liggja með hnéið mitt upp í loft í viku og taka inn einhverjar gigtar töflur. Fór til læknis í dag vegna þess að ég vara gat varla labbað í gær en samt fór ég í vinnuna. Og gerði held ég vont verra en allavega þá er hnéið alveg úr leik eins og er. Ég fékk resept uppá einhverjar gigtatöflur sem eiga að gera hnéinu gott. Ég vona það því að við erum að fara að halda 60. manna afmæli á laugardaginn. En allavega þá kemur þetta sér illa því að það er mikil pressa í vinnuni núna á að skila einhverjum íbúðum fyrir helgi. Þannig að ég get ýmindað mér að það sé erfitt að missa eitt stykki Sigga. En enginn er ómissandi.
Fólk sem að ég tala við frá landinu fagra er alltaf að spyrja mig um veðrið og ég ætla bara að segja ykkur að veðrið er gott. Og enginn ástæða til að halda annað því jú við búum í útlöndum.
Nú er þorrin að byrja og mundi ég gera hvað sem er fyrir hákarl,harðfisk og hrútspunga umumummmmmm.
5 ummæli:
Þar sem ég er að redda þér hákarli, harðfisk og hrútspungum þá langar mig að benda þér á að okkur Eika vantar pening og nudd í kvöld væri ekki amalegt. Sjáumst
Frúin á 23
Er ekki viss um þið viljið að ég nuddi ykkur. Varðandi peningahliðina þá má ræða það hvað vantar ykkur mikið
A: 100 kr
B:50 kr
Eða
C:10 kr
Hvað með 100x50x10. Í dönskum takk.
Frúin á 23
Var búin að skrifa þetta áður heldur en ég fékk vilirði til að nota Tryggva sem burðardýr. Og ég mun nudda hann og bjóða honum í viskí glas/glös
Jói á örugglega smá hákarl fyrir þig ég væri mjög feginn að losna við hann úr ískápnum mínum alla vegna en ef ykkur vantar hjálp á Laugardagin þá bara hringja í 113.
Okkur hlakkar til að koma og éta hehehehehe....
Heyrumst og sjáumst frúin í 113
Skrifa ummæli