laugardagur, desember 16, 2006

Suprise

Allt tókst sem skildi Linda kom hérna alveg óvænt á fimmtudaginn og mikil geðshræring greip um sig. Gunnhildur fór að gráta af gleði og krakkarnir vissu ekki hvernig þau áttu að haga sér. Gaman að fá Lindu en þá var ekki allt búið því að svo var óvænt party á föstudaginn svona stelpu stelpu. Sem að tókst líka og Gunnhildur vissi ekkert. Stelpurnar voru búnar að elda mat og komu með hann yfirog borðuðu þæer og drukku áfengi þó ekki eins mikið og ég hafði áætlað. Þegar að ég segi stelpurnar þá á ég við Vigdísi hans Eiríks, Emblu hans Eiríks Arnar, Lissý hans Arnars, Rakel hans Jóa, Möggu hans Svenna, Heirðrúnu hans Runólfs og svo hafnafjarðasystur. Þetta party hafði allt til að bera til að verða heljarinnar fyllerí en allt kom fyrir ekki þær náðu sér ekki á það srtik í drykkjunni sem að við strákarnir náum hér upp á elleftu hæð. Spurning um að taka þær í kennslu?
En sögur herma að það hefi mikið verið hlegið. Þannig að takmarkinu var svona nokkurn vegin náð. Jæja góð helgi á enda eða þannig og það sem að stendur uppúr er að Gunnhildur er orðin Þrítug vá ætli ég verði einhvertíman þrítugur? Allavega er það eitthvað svo fjarlægt að það tekur því ekki að hugsa um það.

E.S
Takk fyrir allt það Íslenska sem að Mamma og Siggi sendu og einnig það sem að Ásta og Baldvin sendu.
Við eigum svo mikið af nammi að við erum byrjuð að leita að hentugu húsnaæði fyrir sjoppu. Hér í DK.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

jæja, gott að þetta heppnaðist allt svona vel. gaman að geta loksins fylgst með ykkur en ég vil benda á það að hún Gunnhildur taldi sig hafa sent okkur stelpunum bloggslóðina...en ég finn hana hvergi í mínu pósthólfi og sver að ég hef aldrei séð þessa slóð áður!
finnst þetta einhvernveginn soldið Gunnhildi líkt...hmmm... :þ

keep on bloggin'