
Kuldi kuldi kuldi og aftur kuldi vildi bara koma þessu áleiðis. Lofa að skrifa meira þegar að ég er búinn í skólanum. Það er vægast sagt allt geðveikt og þú hugsar hve geðveikt? Ég skal segja þér það það er það geðveikt að ég var í skólanum í gær sem að var sunnudagur. Já ég veit ég er hetja. En er að fara í það að verja/útskýra verkefni vetrarins sem að á að komaí staðin fyrir fimm próf. Já fimm próf þetta er geðveiki og við fáum bara einhverjar 30 mínútur til að útskýra fimm mánuði. Nú eru þið að hugsa hvernig ferðu eiginlega að því jú ég er með hann Rasmus sem að reddar þessu því að hann getur bullað á þvílíkum hraða. Að það er engu lagi líkt. Ohhh það ættu allir að eiga einn Rasmus. Og ef að þig vantar eitthvað til að gleðaja einhver nú um jólinn hvernig væri að gefa honum einn Rasmus. Fást í Danmörku í öllum stærðum og gerðum. En jæja best að halda áfram svo að maður verði nú með verkefni til að verja/útskýra.
Yfir og út
3 ummæli:
Nú þegar jólakortaskrif eru á lokaspretti, getur þú sent mér eða skrifað hérna inn addressuna ykkar?
kv.María
nevermind. þetta er komið.
Já þessir Rasmusar eru ágætir hef ég heyrt en mín reynsla á þeim er ekki eins góð. En Jóa er hægt að fá á Íslandi líka í öllum stærðum og gerðum og ég hef góða reynslu af einum svoleiðis hmmmmm hmmmmm
Skrifa ummæli