Vá hvað ég er búinn að vera latur að henda hér inn línum.
Allavega þá er það helst að frétta að tengdó lentu hér í DK á föstudaginn. Frú Ásta byrjaði á því að stimpla sig inn með því að elga íslenskt folaldakjöt með sósu og öllu tilheyrandi og já það var gott. Svo á laugardaginn fóru tengdó Gunnhildur og börnin á strikið að skoða og versla og hitti ég þau seinnipartinn á strikinu. Veðrið lék við okkur enda ekki komið fallegt haustveður hér ennþá. Eins og í reykjavík ég nefnilega spurði Baldvin hvort að veðrið væri gott heima og hvort að það væri hlýtt. Þá sagði hann "Það er bara svona fellegt haustveður" er það gott eða vont eða er þetta bara svar til að þagga niður veðurumræðuna? Nanna sagði þetta líka við mig á msninu í síðustu viku. Áður en að hún spurði mig hvort ég væri líftrygður, held að Nanna viti eithvað sem ég veit ekki.
Aftur að mat þá var eldaður alíslenskur hryggur í dönskum ofni og íslenskum ofnpotti sem keyptur var í Hagkup fyrir tíu árum. Og já hann var líka góður svo í dag sunnudag þá fór Baldvin uppí veit ekki hvað það heitir en er út á landi. Að taka á móti Herjólfi og stelpurnar fóru niðrí bæ og hafa ekki sést síðan 10 í morgun og er klukkan orðin18:25. Spurning hverjar eru reglurnar hér hvenar maður má kalla á herin til að leita af þeim. Bíð allaveg þangað til Anna Píl er búinn því ekki ætla ég að fara að missa af uppáhldsþættinum mínum. Vegna einhverja týndra rjúpnaskytta. Þegar að stelpurnar fóru niðrí bæ þá fórum við strákarnir uppí Glostrup til Kidda að borða Sushi. Jú góðir hálsa við fengu Sushi í hádegismat sem að var enn og aftur bara gott. Því eins og kiddi segir "afhverju að vera hafa fyrir því að elda vondan mat".
En uppúr 2 var komin tími til að koma sér heim og ákváðum við að hjóla heim því veðrið var svo gott. Jakop vildi endilega hjóla heim því honum langaði að taka sér lúr í stólnum góða. Sem var gott og blessað en hann var alltaf að detta með hausin á töskuna sem að ég var með á bakinu. Þannig það var stoppað í almenningsgarði hér rétt hjá og lúrinn kláraður þar. Svo var förini haldið áfram og ekki stoppað fyrr en að það var komið á Solbakken. Nú erum við nýkomnir inn eftri 4tíma leik úti í garði með öllum helstu börnum solbakkens.
Þangað til næst
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Hvenær fær maður að sjá myndir af ykkur fjölskyldunni?
Og vera svo duglegur að skrifa Siggi, við kíkjum allar hérna inn reglulega :)
Hæhæ.
Þar sem ég er myndavélaeyðileggjari eins og sumir nýorðnirgleraugnaglámar, þá skal ég segja þér að ég rústaði linsunni á minni, kostaði 15 þús kall að setja á hana nýja linsu. Nú býrð þú í DK svo að kostnaður deilt með tveimur er sirka 7500 kall. Og þú splæsir því svo að við fáum myndir... ókey ? treysti á það alla vegana, erum allar orðnar á þörfinni fyrir myndir af dk familien.
Kveðja
Hanna panna
Skrifa ummæli