Ef þú ætlar að flytja til DK skildu þá keppnisskapið sem að þú fékkst að gjöf í Vatnaskógi eftir heima. (nátturulega er misjafnt hvar fólk fékk sitt keppnisskap en ég fékk mitt í Vatnaskógi)
Fyrst eftir að ég kom hérna þá setti ég mér þá reglu að láta ekki neitt kvennkyns taka fram úr mér á hjólastígunum hér í DK. En það er nú hægara sagt en gert því þessar konur sem að eru hér í Dk í sínum 7 cm háu hælum og í drögtunum eru bara í helvíti góðu formi. Fyrst um sinn gekk þetta upp hjá mér en ég var líka búinn á því þegar að ég kom í skólan. Eftir að hafa þurft að taka keppnisskapið og pakka því niður í Iceland spring kassa. Hefur þetta allt verið betra ég er ekki eins sveittur þegar að ég kem í skólann og mér líður ekki eins og karlmanni. Eins og ég segi þá er allt betra. En vitir menn það tók kona sem að er örugglega jafngömul og mömmu minni fram úr mér. Ég kom heim reif upp Iceland spring kassan og endurheimti keppnisskapið mitt. Mér líður betur og gætið ykkar konur því að á mánudaginn ætla ég ekki að láta neina taka framm úr mér. Og sérstaklega ekki ef að þið eruð í háum hælum.
Skyndibitar í DK
Það er ekki eins skyndibitamenning hér og heima. Hér snýst allt um Kebab, Pizzur og vonda hamborgara. Reyndar er einn og einn borgari sem að er góður t.d á Moe's. En það mæti alveg bæta þennan svokallaða skyndibita
Topp 5 skyndibitastaðir sem að mundu virka í dk
5.Hlöllabátar
4.American style
3.Nonnabiti
2.Bæjarins bestu
1.Hamborgarabúlla Tómasar
Ég er viss um að allir þessir staðir mundu virka hér úti svo lengi sem að þeir bjóði uppá það sama og er á matseðlinum heima. Og mundi ég persónulege vera til í að vinna þarna og koma þessu af stað.
Eins er það nammið hérna jú jú það er ágætt hérna en maður saknar nátturulega íslenka sælgætissins. Danir vita t.d ekki hvað er gott nammi allavega ekki hann Rasmus vinur minn. Sem að er mikill nammikall og var hann að spurja mig hvort að það væri gott nammi á Íslandi. Auðvita svaraði ég því játandi en hann vildi fá nánari skýringu á því. Þá sagði ég honum frá kúlu- súki að það væri svona lakkrís með súkkulaði utanum. Hann rak upp stór augu og sagði er það gott. Ask a silly question. Ég verð greinilega að fara hringja í Helga í Góu og byrja útflutning við gætum t.d selt allt svona íslenskt í Magasin fyrst jú að við eigum það.
Stærðfræði
Aldrei hélt ég að ég mundi vakna með þá von heitasta að stærðfræðikennarinn minn væri ekki veikur. En það er búð að vera raunin siðustu tvær vikur. Því hún Birgite er búinn að vera veik og örugglega með eitthvað þvílíkt smitandi. Þetta er einn sá besti ef ekki sá besti stærðfræðikennari sem að ég hef haft. Hún er það góð að hún lætur mig halda að ég geti lært eðlis og stærðfræði. Og geri aðrir betur hún er alger harðstjóri en samt er hún félagi okkar. Sem er held ég besti eiginleiki sem að kennari getur haft.
Ef að þú last allt þetta blogg þá visamlegast skráðu þig inn comment því þú færð stórt jólakort í ár.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Yes fyrstur til að lesa þetta í gegn ! Tók ekki nema 10 min og 23 sek að komast í gegnum þetta metnaðarfulla blogg...áfram svona Sigurður ;) Stílaðu svo bara kortið á 023 !
Vænti þess hvort sem er að fá stórt jólakort.
hæ.. búin að lesa!!
kv nanna grönvaldt
Ég las thad líka allt i gegn! Fáum vid thá 2 á 023.... eda betra... kannski fáum vid jólagjøf!
Skrifa ummæli