En einnig er gert ráð fyrir að maður þurfi aðeins að slappa af þá fer maður með krakkana á leiksvæði þarna í garðinum. Sem er ekkert svo stórt en nægilega stórt til að maður sjái ekki alveg yfir það allt. Við fundum okkur bekk þarna og slepptum krökkunum lausum. Ekki leið á löngu þar til Friðrika þurfti að pissa og fór Siggi með hana. Þegar að þau komu til baka og Friðrika fór að leika. Tókum við eftir að við sáum ekki í kollin á Jakob og upphófst leit við leiktækin sem bara ekki árangur. Gunnhildur hljóp af stað enda gamall flugbjörgunasveitameðlimur og kann þar að leiðandi að fínkemba stór leitarsvæði. Siggi og Friðrika skimuðu um eftir honum í kringum leiktækina en án árangurs. Leitin stóð hátt í 5 mínútur og á þeim tíma var Gunnhildur búin að fínkemba svæðið það vel að hún fann spennu sem friðrika missti í síkið. Svo þegar að Tf líf var við það að fara í loftið frá Reykjavík og Vedderen kominn í viðbragðsstöðu. Þá bilaði Tf líf og lítill englakroppur kom labbandi og sagðist vera með sand í skónum Þá hafði minn bara verið inní einhverju röri þarna í leiktækjunum að bjarga einhverjum kóngulóm sem að voru í miklum háska. Og ekki fá orð því lýst hvað okkur var létt. Við viljum þakka öllum þeim sem að komu að leitinni fyrir hjálpina, Tf líf fyrir að bregðast eins og svo oft áður einnig Vedderen fyrir góða enskukunnáttu.
Íbúðamál og Flutningur
Hafði ekkert heyrt frá flutningafyrirtækinu Eimskip varðandi búslóð þannig að ég ákvað að hringja. Fyrir þá sem ætla að reyna að ná í þjónustusíman fyrir flutninga hjá Eimskip þá get ég sagt þeim það að þó símsvarinn segi að maður sé númer eitt. þá er það bara rugl því maður er ekki númer eitt í röð og þarf samt að bíða í korter. En menn deyja ekki ráðalausir heldur hringdi ég bara í skiptiborðið og fékk að tala við hann Stefán sem sgði mér það að brettin mín væru kominn til DK. Gott var að vita það en samt hafði ég ekkert heyrt frá þeim því það er vani hjá þeim að vera í bandi og fá það á hreint hvenar fólk vill fá búslóðina sína sagði Stefán mér. Fékk ég síman hjá eimskip hér í DK og ekki stóð á viðbrögðunum hjá símadömunni hún gaf mér bara samband við rétta aðillan og ég þurfti ekkert að bíða. Martin tók við símtalinu og tjáði mér það að þeir hefðu ekki fengið neitt símanúmer hjá mér frá Eimskip á Ísl. Og því ekki náð í mig. En sagði að brettin væru tilbúinn til afgreiðslu. Ég sagði honum að gott væri að fá þau ekki fyrr en á föstudaginn því ég ætti eftir að mála íbúðina. Því við skiptum um íbúð og fórum af níundu hæð niðrá aðra hæð sem okkur þótti mun betri kostur. Við fengum þá íbúð ekki fyrr en á miðvikudag. En ég talaði við Martin á þriðjudag. Miðvikudagsmorgunin tóku við snemma vegna viðtals sen við áttum pantað við húsvörðin á kollegíinu. Vegna skiptana, þegar að ég er að skoða íbúðina á annarri hæð þá hringdi síminn. Á hinum enda línunar var dani sem tjáði mér það að hann væri með tvö bretti sem að ég ætti að fá og að það væri hálftími í hann. Ég fór nátturulega í panik því það átti eftir að mála íbúðina og þrífa. Ég segi honum að ég sé á staðnum þá segist hann bara koma eftir korter. Jæja það verður bara að taka á þessu og sem betur fer var Vigdís hetjan okkar á svæðinu og hjálpaði hún okkur með draslið upp. Í ómáluðu íbúðina á annari hæð. En rúsínan í pylsuendanum er sú að allt sem var á brettunum sem hægt var að skemma var skemmt. Kommóðan var mölbrotinn svo brotin að við vorum alvarlega að hugsa að fara með hana beint á haugana. Hillusamstæðuna er ég ekki búinn að taka untan af en umbúðirnar segja mér sem svo að hún sé ekki heil og uppþvottavélin er brotin. Þanngi að ég held að maður verði að nýta sér trygginguna sem að við tókum á búslóðina. En einhvernvegin held ég að það verði ekki auðsótt mál. Ég tók nátturulega myndir af öllu sem að var laskað þannig að maður hefur það. Einnig sagði bílstjórinn sem að kom með þetta að hans fyrirtæki hefði skráð að brettin væru ónýt. Næsta skref er að ræða við Eimskip, bara ef að maður þekkti einhvern sem er náskyldan manni sem að vinna hjá Eimskip.
Eiríkur Steinn og Heimir þór hafa staðið sig eins og hetjur í því að hjálpa mér að máæa höllina sem að fer bara að vera búið. Þrátt fyrir að þeir séu báðir í vinnu þá eru þeir mættir strax eftir vinnu til að hjálpa Sigga sínum.
Eiríkur Steinn og Heimir þór hafa staðið sig eins og hetjur í því að hjálpa mér að máæa höllina sem að fer bara að vera búið. Þrátt fyrir að þeir séu báðir í vinnu þá eru þeir mættir strax eftir vinnu til að hjálpa Sigga sínum.
2 ummæli:
Jæja, þið eigið greinilega að hafa aaaðeins meira fyrir þessu en áætlað var, ha ! En svekkjandi að þetta kom svona illa út úr sendingunni, glatað ! Því miður þekki ég engann hjá Eimskip sem gæti hjálpað.
Talandi svo um dýragarðinn....ég get ekki að því gert en við Einar fórum döpur heim úr síðustu dýragarðsheimsókn í DK. Að sjá greyið ísbirnina í þessum hita og tígrisdýring og þessi flottu villtu dýr á pínupons bletti...ef þau gætu hengt sig þá væru þau örugglega öll búin að því.
Annars kæru vinir..hlakka til að hitta ykkur í komandi viku. Það væri gaman ef við gætum rekið inn nefið heim til ykkar bara til að sjá hvernig þið munuð hafa það, ha? Við pælum í því þegar við hringjum í ykkur.
Knus og kram, p&p
María, Einar og stúfar
María flest þessara dýra eru fædd í dýragarðinum og þekkja því ekkert annað því miður.
Skrifa ummæli