sunnudagur, júlí 09, 2006

Í sumar yl

Við erum ekki flutt en það virðis vera að við séum að fara að flytja. Reyndar bara um einn stigagang og sjö hæðir neðar. Gunnhildur og Vigdís tóku eftir því að það var auð íbúð á annari hæð og fóru þær á stúfana og fundu eina stelpu. Sem að vildi svo skemmtilega til að hún þekkti fólkið sem að var að fara að flytja inní tómu íbúðina. Og hún hélt að þeim langaði að vera hærra uppi og það er bara frábært. Þannig að við létum hana fá mailið og símann hjá okkur. Svo var ég að heyra í stráknum sem vill ólmur skipta en þetta verður allt að koma í ljós. Því við þurfum að fá íbúðina snemma í næstu viku vegna þess að búslóðin er að koma en þau eiga ekki að fá íbúðina fyrr en 15 júlí. Ég og umboðsmaður minn sem er búinn að standa sig með einstakri prýði ætlum að tala við húsvörðin á mánudaginn. Og vonandi verður hægt að fá íbúðina aðeins fyrr.

Í gær fórum við í FIELDS sem er svona risa kringla hérna. Við vorum aðalega að fara til að leita að kerru fyrir Friðriku. Því það er ekkert smá mikið labb hérna fyrstu dagana þegar að maður er að koma sér fyrir. En leyfðum krökkunum fyrst að fara í boltaland sem er á efstu hæðinni og það er ætlast til að einhver fullorðin sé með. Þó svo að maður megi skilja þau eftir ein þá vildu við ekki gera það svona í fyrsta skiptið. Ég skal segja ykkur það við vorum þarna í klukkutíma og þau voru búinn eftir þetta . Það er ótrúlega mikið um klifrukastala og dót ætlað til að þreyta og skemmta börnum. En fyrst þau voru orðin svo þreytt þá gátum við ekkert farið á ráb í Fields. Bara næst, í gær var bara Hildur kvödd og við fórum bara nokkuð snemma að sofa.

Það er búið að vera mjög gott að hafa Hildi hérna úti hún hjálpaði okkur að taka fyrstu skrefin í þessum nýja heimi. Sem við kunnum henni miklar þakkir fyrir. Kiddi bróðir kemur í kvöld og verður í tvo daga. Þannig ég verð búin að sjá meira af systkynum mínum núna eftir að ég flutti til DK en ég sá þau heima. Síðan ætla mamma og Siggi að kíkja hérna við í lok júli þau eru nefnilega að taka Evróputúr.

Engin ummæli: