mánudagur, júní 05, 2006

vikan

Það er svo mikið sem búið er að gerast síðan að við blogguðum síðast en ef að á að stikkla á stóru. Þá fórum við í grilllveislu til Haffa og Lindu og einnig til Gunnars og Ástrósar á Selfossi.
þá helgi nýtti maður sér kosningarétt sinn og er bara nokkuð sáttur með meirihlutan hér í Hafnafirði.

Síðasta vika fór í að taka á móti leigjendum og þetta er bara eiginlega erfiðista staða sem ég hef verið í. Það að velja og hafna fólki er eitthvað sem að maður er ekki vanur. Mér fannst ég vera vondikallin þegar að ég þurfti að tilkynna fólkinu sem við völdum ekki. En það er sem betur fer búið. Á föstudaginn fór ég að hitta strákana og hittumst við hjá Edda. Adam bjargaði tónlistinni og kom með Singstar. Ekki voru allir með jafn mikin áhuga á þessum leik en gaman að prófa þetta . Svo lá leiðinn niðrí bæ sem var bara fínt en mér er farið að finnast að það verður bara ekkert skemmtilegra niðrí bæ heldur en í partyinu. Þettta var samt voða gaman að hitta alla strákana.

Helena og Jónsi giftu sig
Á laugardaginn fórum við bara í eitt af skemmtilegri brúðkaupum sem við höfum farið í.
Þar var sungið,dansað,hlegið,borðað góðan mat og drukkið. Síðan eftir brúðkaupið var smalað í party hjá einhverri frænkunni.

Engin ummæli: