laugardagur, maí 27, 2006
Kosningar
Var að horfa á Kosningakastljósið og held bara að hann Dagur sé góður kostur. En hérna í Hafnafirði held ég að Lúðvík verði endurkjörinn en ef að Rósa Guðbjartsdóttir væri í efsta sæti hjá XD þá fengju þeir mitt atkvæði. Ég er ekki búinn að ákveða hvað ég ætla að kjósa en tók þetta próf og ég held að ég sé engu nær . Ég var í fríi í dag vann frekar í gær, var bara nokkuð duglegur hérna heima málaði og græjaði það sem þurfti að græja en samt nóg eftir. Við erum að fara út eftir u.þ.b einn mánuð og mér finnst eins og að það eigi eftir að gera allt. Gunnhildur verður reyndar gríðalega dugleg nú þegar að hún er búinn að skila B.A ritgerðinni. Þannig að ég þarf engar áhyggjur að hafa af því að pakka en ég á bara svo mikið eftir að gera að ég veit varla hvar á að byrja. Var að fá sms frá Jónasi blikkara um að ég eigi að kjósa Xb rétt í þessu ég held að hann sé í partýi hjá þeim. Og að hann fái einn bjór fyrir hvert sms. Þannig að hann er orðin svolitið fullur fyrst að hann er kominn alla leið í essið.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli