föstudagur, apríl 14, 2006

OKAY

Nú er allt á réttri leið Gunnhildur leggur nótt við dag að skrifa BA ritgerðina sem að gengur bara vel þrátt fyrir smá ritstíflu til að byrja með. Ég er bara með börnin þessa dagana samhliuða því að aðstoða mömmu og sigga við breytingar á sólpallinum því að það verður að vera með almennilegan pall þegar að maður er kominn með heitapott.
Svo eins og flestir vita þá er ég SAS kominn inn í KTS
Einnig erum við kominn með íbúð á Solbakken sama koleggi og hann Eiríkur Steinn vinur minn og hans kona og barn. Það er nú einmitt þeim að þakka að við fengum íbúðina því hún Vigdís var dugleg að fara og tala við stelpurnar sem að úthlut íbúðunum.
Og eitt skiptið sem að hún fór niður að tala við þær þá fundu þær bara ekki umsóknina okkar þannig að hún þurfti að fylla út nýja umsókn á staðnum með mig í símanum.
Og allt gekk vel og við fáum íbúðina 1.mai svolitið snemmt en berta en að fá hana 1. ágúst.
Við verðu m á 9 hæð T.H sem að er bara allt í lagi nema að Gunnhildur er svolitið lofthrædd en þetta venst vonandi allt.
Nú er bara þéttskipuð dagskrá í að skrifa BA,Vinna,Hjálpa öllum þeim sem að ég er búinn að lofa að hjálpa.Grisja.Selja það sem við ætlum ekki að taka með og síðast en ekki síst finna leigjendur.

1 ummæli:

Vigdi­s sagði...

Jújú það er nóg að gera!
Við hlökkum BARA til að fá ykkur og ekki nóg með það að fá ykkur í næsta stigagang :o)
Knús frá Solbakken