Ég er eitthvað svo sáttur við að vera ekki að vinna á morgunn heldur eyða bara tímanum með krökkunum. En afhverju er frí á sumardaginn fyrsta og afhverju er dagurinn ekki færður um einn dag til að lengja helgina aðeins. Eins með með 1. mai ber hann ekki altaf upp á fimmtudegi.
Eins var ég að velta fyrir mér sumar og vetrartíma hvað er svona slæmt við hann að íslendingar vilja ekki taka hann upp hér á landi.
Hugsaðu þér að eiga lengra kvöld á sumrin og svo þegar að tímanum er breytt yfir í vetrartíma þá getur maður sofið klukkutíma lengur.
En nú er búið að greiða leigu af höllinni sem við munum búa í, í DK 65 fermetrar að stærð og á 9 hæð til hægri ljúft. Nú er bara að fara að hlakka til eða kannski fyrst að pakka niður finna leigjendur selja bílana og svo. Já þá loksins er hægt að byrja að telja niður.
miðvikudagur, apríl 19, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli