sunnudagur, nóvember 08, 2009

Update

Það hefur margt gerst síðan að það var skrifað hér inn síðast.

Þess ber helst að nefna að miðpunktur athyglinnar hann Patrik er byrjaður að finnast hitt og þetta fyndið og brosir út í eitt þegar að við látum eins og kjánar fyrir framann hann. Friðrika og Jakob eru ekkert smá hrifin af honum og ekki komið upp nein afbrýðisemi sem að við bjuggumst alveg eins við. Jakob segir alltaf Patrik minn þegar að hann talar um hann og Friðrika fær ekki nóg af því að vera stóra systir þegar að kemur að segja þessum drengjum til. Hún er alveg kostuleg og stundum þá verðum við bara kjaftstopp þegar að hún byrjar og við virkilega erum að velta því fyrir okkur hvort að hún sé bara sjö ára.

En okkur langar að skerpa á því hvað drengurinn heitir því það virðist vera að fara eitthvað á milli mála

Nefnifall:Patrik Þór
Þolfall:Patrik Þór
Þágufall:Patrik Þór
Eignarfall:Patriks Þórs

















7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

*snökt*snökt* ég trúi því ekki að ég sjái ekki Patrik Þór fyrr en í maí. Er alveg að tapa mér hérna fyrir framan tölvuna, langar svo að geta komið við hann og Friðriku og Jakob líka

Knús á alla
Linda sys

Nafnlaus sagði...

Ég segi eins og linda rós það er eins gott að vera ekki að skoða þessar yndislegu myndir í vinnunni, ég afgreiði ekki útgrátin. Friðrika geggjuð á 1st myndinni elsku stóra stelpan mín og fallegar myndirnar af þér og patrik. og jakpb minn alltaf bíðastur og bestur.


knús knús knús
amma mamma

Herdis sagði...

yndisleg og falleg börn:) það verður æði að fá að kynnast þeim betur þegar við flytjum. sjáumst í janúar:) Herdís

Nafnlaus sagði...

sniff sniff
þið eruð svo mikið æði ..og ég vil taka það fram að ég elska að sjá svona mikið af myndum og svona ört ...bestur þakkir
Tinna frænka

SGFJ sagði...

Já Linda það er erfitt að vera svona langt í burtu en thank good fyrir Skype, annars ertu alltaf velkomin í heimsókn:)

Já Herdís okkur hlakkar til að fá ykkur til Köben.

við munum svo reyna að taka myndir eins og við getum og posta þeim.

Nafnlaus sagði...

Jeminn hvað hann Patrik er endalaust fallegt barn!!!
Ég er alltaf að skoða myndirnar aftur og aftur af þessum elskum.

Þú lítur líka rosalega vel út Gunnsóið mitt, alltaf sama skvísan :)

Hlakka til að heyra nýtt blogg með ferskum fréttum af ykkur öllum.

Knús,
Ragga

Nafnlaus sagði...

Kinnarnar hans Patriks eru auðvitað bara gerðar til að knúsa þær og kyssa. DÚÚÚÚLLLLLAAAA !

ohhh bráðn :)

Kossar til ykkar elskulega familí, lov'ya :)

kv. M