föstudagur, ágúst 28, 2009

Jæja, góðan og blessaðan daginn og María, innilega til hamingju með afmælið skvís. Ég vildi byrja á að deila þessu Youtube myndbandi þar sem mér finnst lag og söngur bara svo flottur:




Annars allt gott að frétta héðan, Sommerfest á Solbakkanum á morgun og því mikið að gera hjá Sigga þar sem að hann og restin af bar-udvalginu tók að sér að halda þetta í ár. Það verður Mexíkó þema með Chili con carne í mat og öllu tilheyrandi, hoppukastali og andlitsmáling fyrir börn og margt fleira. Nú er bara að skella sér á skeljarnar og biðja veðurguðina um að vera góða við okkur.

Hér koma nokkrar myndir teknar í mánuðinum sem leið:


Mín á leið í myndatöku í skólanum.


Þetta kallast 'kreppubað'


Feðgarnir að vinnumannast


Verið að æfa andlitsmálinga hæfnina fyrir Sommerfest!


...og allir verða að fá að prófa!


... arrrgg!!!

Svo koma fleiri myndir eftir sommerfest.

Ciao amigos.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

thid erud ædi!
magga stina

Nafnlaus sagði...

Æðisleg andlitsmálun !

Þú ert algjör snillingur í þessu Gunnhildur mín.

Takk fyrir kveðjuna.

Hafið það alltaf gott.

kv. María

Nafnlaus sagði...

ég dittóa Möggu og Maríu :)

Ragga

Nafnlaus sagði...

Halló sæta fjölskylda ! Býst við því að það hafi verið gaman á sommerfest, hefði alveg verið til í að vera þarna líka... snökt, snökt...og fá einhverja svona flotta andlitsmálningu ; ) Vona að þið hafið það gott öllsömul, við höfum það bara fínt, allt í góðum gír og lífið komið í rútínu aftur eftir langt og gott sumarfrí.

Knús, knús

Kveðja Heiðrún

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ kæra fjölskylda, jæja og hvenær er svo krílið aftur væntanlegt? Er svooooo hrikalega gleymin þessa dagana, er samt ekki ólétt, nei nei, eða með barn á brjósti, bara svoo mikið að gera og erfitt að byrja að vinna aftur.
Annars vantar mig líka mailið þitt Siggi og heimilisfang, luma á ýmsu námsefni fyrir prinsessuna ykkar, sumt get ég sent á maili og annað sendi ég bara í pósti, daman verður að læra íslensku líka :-)

knús í hús, kv. Ástrós

Nafnlaus sagði...

hilse elskurnar héðan frá kópavogi

Gunnhildur ekkert smá flott málað hjá þér elskan...ættir kannski að fara í kvikmyndaförðun ofl ...

eruð þið ekki orðin spennt að sjá litla prinsinn ykkar mæta í heiminn...ég er það mikið spennt að ég er að telja niður dagana

hlakka til að sjá myndir ...Siggi minn þú lætur þetta berast hratt elskan

knús á fallegu börnin ykkar
kv.
Tinna frænka

Herdis sagði...

algjör snillingur Gunnildur! Vona að allt gangi vel og að þú getir notið síðustu óléttudaganna:) Hlakka mikið til að sjá litla guttann. knús og kossar til ykkar allra, Herdís.