föstudagur, apríl 17, 2009

Samgróningar og fánar

Jæja Jakob er enn heima með hlaupabóluna daginn í röð og hann er ekki einu sinni veikur. Hann er svo hress og fullur af lífi en hann er með bólur það er eini munurinn á honum og venjulega. En ég leyfi honum nú aðeins að viðra sig en ekkert úr hófi. Það er pínu erfitt að vera ára og hanga inni á meðann að það er sól og hiti úti og allir vinirnir að leika. Þannig að ég er að vinna mér inn prik hjá honum þegar að ég hleypi honum aðeins út á svalir eða út í kastala.
Það var merkisdagur hér í DK í gær þar sem að hún Margrét II átti afmæli veit nú ekki hve merkilegt það hefur verið á Íslandi. En hér var flaggað og það er ekki eins og að það sé gert nema 19 sinnum á ári en t.a.m þá eru ekki nema 11 fánadagar á Íslandi. Reyndar fannst mér alltaf vera flaggað þegar að við fyrst fluttum hingað og þó aðalega á strætóunum en svo komst ég að því að það átti bara að vera flaggað í einn dag á strætó en það endist alveg í þrjá daga. Þannig þar kom skýringin latir flagg starfsmenn hjá strætó.

Jæja kannski ekki mikið að frétta héðan nema bara að Friðrika er alltaf að æfa sig á píanóið og gengur svona prýðisvel í skólanum. Jakob hann er með eitt markmið í lífinu og það er að verða vinnumaður. Gunnhildi er byrjað að líða aðeins betur svona oftast og vonar maður bara að það haldi sér og verði bara betra. Við erum að fara í dag að hitt einhvern læknir held að það sé fæðingarlæknir.
Fyndið að um leið og við gerðum þessa óléttu opinbera þá byrjaði ég að sjá óléttar konur út um allt. Og þetta byrjaði allt á Íslandi. Eins og þegar að ég sagði yfirmanni mínum hjá VSÓ að ég ætti vona á barni þá seinna um daginn biðu mín hátt í 20 óléttar konur fyrir utan vinnuna mína. Fyrst hélt ég að Maríus yfirmaður minn hefði svona afbragðshúmar að hann hafi bara hóað í 20 óléttar konur en svo var ekki. Ég komst seinna að því að það er óléttu jóga á hæðinni fyrir ofan. En mér fannst eins og ég væri bara í the twlight Zone. Svo uppfrá þessum degi hafa bara óléttar konur elt mig á röndum. Og ekki eins og það sé nóg að þær séu út um allt þá eru þær að taka yfir sjónvarpið líka.
Ég og G vorum að surfa á sjónvarpsstöðvunum sem að eru nú afspyrnu lélegar en þá lendum við á skadestuen sem að er raunveruleikaáttur sem að gerist á spítala. Og hvað haldi þið það var verið að skera upp konu sem að hafði verið búin að fara í tvo keisara fyrir og það voru miklir samgróningar og allt einhvern veginn svo erfitt. Gunnhildur sagði bara shit vá ææji og svo „siggi vaistu ég veit að þetta verður einhvernvegin svona hjá mér“ . Ég bað hana bara vinsamlegast að skipta um stöð, en það tók nú ekkert betra við og allt kvöldið þá lentum við á einhverjum þáttum að ef að það voru ekki börn að berjast við sjúkdóma þá var verið að sýna fæðingar sem að gegnu því miður ekki alltaf vel. Þannig að ég ákvað að nú væri komið nóg og slökkti á sjónvarpinu. Klukkan var líka komin langt yfir svefntíma á þessu heimili sem að er í kringum 8:30.

En jæja skiptum nú aðeins um gír haldi þið ekki að konan mín hafi verið að gefa mér GEÐVEIK headphone sem að gefur að lýta hér að neðann.






4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Æææ maður á ekki að horfa á svona þætti, það er fínt að láta bara Vigdísi horfa á heimildaþættina og segja manni svo bara frá því merkilega úr þáttunum svona af og til. ; ) Annars er best að vona það besta og búast við því versta. En ég er alveg sannfærð um að þetta á allt eftir að ganga vel hjá ykkur.
ég er komin með ansi mikla Sólbakkaþrá eða Köben-heimþrá þessa dagana, sakna mikið bleiku og hvítu blómanna í garðinum því það eru engin svoleiðis hjá mér, bara gult gras....uhuhu.. En það styttist í að við komum í heimsókn, Eigum enn eftir að finna íbúð til að vera í á meðan, en það hlýtur að reddast. Hlökkum til að sjá ykkur.

Siggi takk fyrir páskaeggin, þau voru mjööög góð. Málshættirnir voru : "Sjaldan fara sköllóttir í hár saman" og "Eins dauði er annars vatn og brauð". Mér finnst þessir málshættir ekki vera þess legir að það þurfi að banna þá innan 18 ára sérstaklega þar sem Ástþór Ingi fékk í sínu eggi "Bjalla er bjórfullur maður" en Kristján Daði "Hollur granni er gulli betri " báðir mjög sannir. En það má deila um hverjir af þessum málsháttum eigi að banna börnum ; )

Hafið það gott elskurnar og njótið vorsins í Köben fyrir mig líka.

Ykkar Heiðrún

Nafnlaus sagði...

ein voda sein...er ad koma nýtt baby? hvenær er von á thví osv.? til lukku til lukku til lukku:) 3 is the number:) yours magga stína

Unknown sagði...

Hvaða headphone eru þetta sem þú varst að fá?

SGFJ sagði...

Þetta eru Wesc headphone sem að eru svona smá old school street wear headphone. Æji mér er búið að langa lengi í þau bæði hljóma þau vel og þau eru flott. En ég verð bara að sýna þér þau við tækifæri