þriðjudagur, mars 03, 2009

Helvítis kreppann

Ég er af þessari svokallaðri krúttkynslóð því þegar að hún tengdamóðir mín var að reyna að telja mér trú um að það væri kreppa yfirvofandi árið 2007. Þá bara horfði ég á hana og hugsaði sú hefur stigið vitlausu megin framúr í morgunn. Ef að það hefði nú bara verið að Ásta hefði stigið vitlausu meginn framm úr og ekkert hefði verið til í því sem að hún sagði. Þá þætti mér jafn vænt um hana. En hún hafði rétt fyrir sér í þetta skiptið. Fór svona aðeins að hugsa um þessa helvítis kreppu eins og fólk talar um hana, eftir að ég hitti kunningja minn í 10/11 í dag. Eða heitir búðin 11/11 allavega hér eftir hitti ég hann bara í búð. Ég ákvað að labba út í búð bara svona til að fá ferskt loft í lungun eftir allt of mikla kyrrsetu fyrir framan tölur og formúlur sem að virtust hvort eð er ekkert ætla að ganga upp. En þessi ágæti kunningi minn tjáði mér hve gott var að sjá mig og rifjuðum við nú upp hvenær að við síðast sáumst. Og urðum við sammála um að hafa bara ekki sést í hartnær 5 ár. Loks þegar að við vorum búnir að rifja upp allt það sem að við brölluðum á okkar yngri árum. Þá var næsta mál á dagskrá helvítis kreppan. Og bölvaði hann henni í sand og ösku og talaði um þessa helvítis bankastjóra sem að klúðruðu öllu. Og ekki var hann ánægður með ríkistjórnina og helvítið hann Davíð. Svo loks þegar að hann var búinn að hreint út sagt froðufella yfir öllum sem að komu nú kreppunni af stað. Þá spurði ég hann hvað hann væri að gera. Jú hann er í einhverjum í hlaupavinnum en hann var að vinna í einum bankanna sem að skitu á sig og þar var hann í eignastýringu. Okay sagði ég og var það ekki fínt? „Jú það var besta jobb sem að ég hef verið í „ sagði hann. Og áfram hélt hann“Siggi þú mundir ekki trúa hlunnindunum sem að fylgja svona starfi bíll utanlandsferðir og launin þau voru geðveik“.
Nú kemur smá samræða sem að verður nákvæmlega eins og þetta atvikaðist


Siggi“þá hlýturðu nú að vera búinn að koma þér ansi vel fyrir er það ekki“
Kunningi“jú á einbýlishús í Grafarholtinu, þú hefðir nú gaman að koma og skoða þar sem að það er allt smíðað af meisturum“
S“okay frábært þannig að það hefur allt verið gert bara tip top“
K „Já þú þekki r mig ég geri ekkert í hálfkáki“
S „nei það er rétt“
K „nema hvað ef að þessi helvítis ríkistjórn og þessi Davíð hefðu nú getað haldið rétt á spilunum þá hefði ég nú efn á þessu. En núna er ég að lenda í helvítis veseni“
S „ já eins og bara flestir“
Hann sparkar í dekk á Ford kann ekki að segja hvaða týpa en flottur var hann
K „svo er það náttúrulega bílarnir ég er á þessum“ hann sparkar aftur í dekkið á flotta Fordinum sem að ég kann ekki að segja nafnið á.
S „já ég er bara feginn að vera í danmörku mér er alveg sama þó ég eigi ekki neitt ég á fjölskyldu sem að amar ekkert að og maður getur ekki beðið um meira“
K „ nei það er satt jæja verð að fara að koma mér en láttu mig hafa númerið hjá þér, við verðum að hittast og grilla eða eitthvað.


Þessi Kunningi minn fékk símanúmerið hjá mér en ég efast um að hann hringi. En það sem að sló mig er að hann er á sama aldri og ég hann á hrikalega einbýlishús í grafarvoginum þar sem að ekkert var sparað. Og spanderað í allskyns hönnuði til að hafa húsið sem flottast. Hann keyrir um á bíl sem að er jafn dýr og íbúðin mín. Hann er búinn að fara í ótal utanlandsferðir. Semsagt búinn að lifa lífinu algjörlega í botn á lánum. En það er ríkistjórninni að kenna að við erum stödd í þessari kreppu. Jú og Davíð Oddsyni. En ekki honum, hvað ætli margir sjái sjálfan sig bara pínu í þessum kunningja mínum. Tja það eru fleiri en þora að viðurkenna það allavega. Það hafa flestir tekið þátt í þessari geðveiki sem að hefur verið undanfarin ár beint eða óbeint. Og er bara ekki komin tími til að við áttum okkur á því og reynum að gera eitthvað í okkar málum áður en að við förum að skíta út alla sem að hafa verið áberandi síðustu árinn í Séð og heyrt.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Laukrétt hjá þér Siggi, laukrétt. Ég á ekki einu sinni kreditkort og hef aldrei átt : ) En mér finnst Davíð Oddson ekkert ROSALEGA skemmtilegur.

Áfram Árni Johnsen bara. Nei grín!

-Ásthildur.