Þar sem að ég er komin til Íslands að vinna aðeins og Gunnhildur er ekki með tölvu þar sem að heimilistölvan dó.
En það eru nú bjartari tímar framundan þar sem að Gunnhildur fær nýja tölvu vonbráðar.
Eins og ég segi þá er ég komin heim að vinna og bjarga ýmsum málum sem að eru að hrjá þjóðina en verst að ég má ekki tala um það alveg strax.
Eins og flestir vita þá er Friðrika byrjuð að læra á píanó og gengur alveg rosalega vel.
Í raun gengur svo vel að kennarinn er komin með hana á svaka prógramm þar sem að hún skilur allt sem að henni er sagt. Og er fljót að pikka upp laglínur og nótur.
Á heimilinu er annar píanósnillingur en samt svona meiri sólóisti og höfundur.
Svo missti hún Friðrika tönn sú var búin að vera laus ansi lengi. Og var Friðrika búin að biðja mig mikið um að kippa henni úr en einhvernveginn þá hef ég mig bara ekki í það. En eitt kvöldið þegar að hún var í baði og tjáði mér það að hún gæti nú bara örugglega ekki borðað fyrir þessari tönn. Þá lét ég verða að því og kippti henni úr. Og dóttir mín hetjan fór ekkert að gráta heldur þakkaði bara pent fyrir.
5 ummæli:
Flottir taktarnir í Jakobi, hann verður flottur DJ í framtíðinni, á meðan Friðrika mun halda píanókonsert í Royal Albert Hall ;)
Já Siggi, gott að vita af þér hérna á klettinum að redda málunum, nú get ég farið að sofa sæl og kát.......Reg
Sammála síðasta ræðumanni, hann hefur alla burði tul að láta að sér kveða í framtíðinni. já hann er bara flottastur þessi elska, hún er auðvitað séní í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur, það vita allir.
knús og kossa
amma (hógværa)
Almáttugur minn hvað þið eigið fullkomlega frábær börn : ) Ég er búin að hlægja mig nánast máttlausa af Jakobi, hann er svo mikið krútt! Friðrika er alls ekki á verri endanum svona tannlaus og sæt, ég man þegar ég missti mína fyrstu tönn og djöfull fannst mér vont að "juða" henni til og frá, Friðrika er ansi sterk myndi ég segja.
Bið að heilsa ykkur þarna úti, en ekki Sigga þar sem ég get böggað hann nóg og mikið næstkomandi vikur. En ég skal lofa að kíkja hingað oftar, vissi ekki að þið væruð svona dugleg að henda inn myndum og fréttum, frábært hjá ykkur : p
-Ásthildur frænka.
OMG hvað Jakob er mikið krútt þarna, minn bara voða danskur:-) og litla frúin náttúrulega alltaf sæt.
Siggi við sjáum þig vonandi í næstu viku, var það ekki planið:-) Findu bara dag sem hentar þér best!
kv. Ástrós og c.o
YNDISLEGUR ÞESSI ELSKA
ÞVÍLÍKT HVAÐ ÉG HAFÐI GAMAN AF SÖNGNUM HANS
KNÚS Á YKKUR ÖLL
TINNA FRÆNKA
Skrifa ummæli