laugardagur, janúar 10, 2009

Fullmönnuð fjölskylda

Jæja þá er allt að komast í sama farið eftir íslandsferðina, Friðrika fór í skólann á föstudaginn og hitti alla vini sína og vildi svo ver lengi á fríddaranum til að ná að leika extra mikið. Gunnhildur fór í vinnuna þar sem að beið hennar fjall verkefna. En strákarnir voru með svona hálfgerðann stráka dag þar sem að Jakob var boðaður til tannlæknis uppúr 10 og tók því ekki að fara í leikskólann. Þess heldur fóru strákarnir niðrí bæ eftir tannlæknatímann og spókuðu sig á strikinu. Reyndar var eitt markmið með bæjarferðinni og það var að finna efni í Róbotinn sem að þeir ætluðu að byggja. Reyndar átti að byggja hann á Íslandi en það gafst ekki tími til þess. En Róbotinn fundum við í dótabúðinni BR og var fjárfest í Lego Robot. Jakob ljómaði allur þegar að Róbotinn var tilbúinn og hefur hann verið að leika sér með hann síðan.

Má til með að segja ykkur hvað Friðrika sagði við pabba sinn á föstudagsmorguninn.
Friðrika vaknaði á ágætis tíma nema hvað að það þarf stundum að ræða mikið á morgnanna og þá gleymir hún að borða og þá flýgur tíminn. Þannig að Siggi þurfti ansi oft að segja við hana „jæja Friðrika nú þarftu að fara að drifa þig að borða“. Þetta féll svona ekki alveg í góðan jarðveg þar sem að hún var að borða og vildi bara gera það á sýnum hraða. Þá datt uppúr henni „pabbi ef að ég á að flýta mér svona mikið gætir þú þá ekki náð í föt fyrir mig í staðinn fyrir að standa yfir mér“. Verð að viðurkenna að þetta var svona smá slap in the face en samt alveg rétt en ég ákvað að svara „já en Friðrika þú vilt nú yfirleit velja föt á þig sjálf“. Þá segir hún „ já en í dag skiptir það ekki máli“.
Stundum finnst mér eins og að hún sé töluvert eldri en bara 6 ára.

Engin ummæli: