Nú er meira en góðu hófi gegnir að gera í skólanum en einhvernvegin tekst mér alltaf að vera að gera eitthvað annað en að læra þegar að ég sest fyrir framann tölvuna. Nú á ég t.d að vera að gera tólf ára fjárhagsáætlun en þess í staðinn rakst ég á góða grein um Revit (sem er teikniforrit sem að ég er byrjaður að elska). En án þess að vera að ausa yfir ykkur hvað Revit er gott og flott því ég veit að það er bara einn aðilli sem, að les þetta blogg sem að hefur áhuga á því og það er hún Magga Stína því set ég hérna inn nokkra áhugaverða linka fyrir hana. 1 2 3 3
Já það er talið niður hér og nú eru aðeins fjórtán dagar þangað til að bið stígum fótunum niður á landið hans Davíðs nei ég meina Ísland. Það er svo mikil tilhlökkun að fara heim því það er eitthvað svo mikið að gera inní hugum krakkanna. Þeim langar að fara í sund, komast á snjóþotu, borða góðan mat (það er kominn óskalisti yfir hvað þau vilja fá). Svo mæti lengi telja, eldri deildinni hlakkar bara til að koma heim og hitta alla okkar nánustu og kannski reyna að slappa af. Við ætlum ekki að vera í miklu stressi heima við erum meiri segja byrjuð að skipuleggja dagana með það í huga. Þannig að ef að það er einhver með eitthvað sérstakt í huga þá bara endilega að láta okkur vita en annars verðum við bara á fimm stjörnu hótelinu og er ykkur velkomið að koma þangað. Ég er viss um að það verði alltaf heitt á könnunni og ef að þið eruð heppinn þá er nýbúið að baka pönnsur.
Núna er aðalega verið að bíða eftir að sveinku láti sjá sig með gotterí í skóinn. Friðrika meiri að segja sannfærði bróðir sinn um að kannski kæmi sveinki í kvöld þannig að það voru skór út í glugga í nótt. En ekkert kom í bomsurnar. Þá var bara hægt að hugga sig við sælgæti úr Spidermann og High school musical dagatölunum.
Friðrika verður mjög upptekinn næstu önn ef að verður að öllu sem að hana langar að gera hún heldur jú áfram í myndlistinni og Capoera. En svo var hún að fá boð um inntökupróf í konunglega balletinn sem að verða 4 helgar í janúar. Síðan langar hana svo mikið að fara að læra spænsku og taka nokkur grip á gítar.
Ég hef alltaf verið fylgjandi að krakkarnir prófi sem mest af allskyns tómstundum og er því erfit að ákveða hvar á að skera niður.
Jakob er alveg að detta inn í þennan pakka líka nema hvað að við ætlum að reyna að koma hinum að í Capoeira til að byrja með. En honum langar að gera svo margt en sumt að því er því miður ekki hægt eins og t.d að byggja stórt hús með mér (hann ætlar jú að verða smiður), svo er það hestamennskan hann er alveg hrikalega áhugasamur um hana (til lukku Baldvin hér er kominn einn sem að þú gætir mótað).
Annars er bara allt í góðu hérna í DK Gunnhildur er ánægð í vinnunni, og ég er sáttur í skólanum hvað annað getur verið betra? Jú kannski gengið hahaha
Þegar að mig vantar að komast í jólaskap þá hlusta ég á þetta og jólahjól með Snigglabandinu. Endilega komdu með tillögur að þínu uppáhalds jólalagi. Þess má geta að þetta er uppáhalds jólalagið hennar Gunnhildar.
Endilega hendið inn commenti
fimmtudagur, desember 04, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
10 ummæli:
Ertu að djóka, rakst á þetta lag á YouTube í gær og ætlaði að blogga um hvað þetta lag komi mér í gott jólaskap... en þú varst fyrri til :o)
haha já þetta kemur mér alltaf í jólaskap.
Howdy.
Það verður gott að fá ykkur og þá ekki í pörtum, heldur öll saman!
Svo bíður okkar nátturlega hlaðborð ársins, í stóru íbúðinni minni. Það verður bara næs.
Ertu búinn að æfa skemmtiatriði fyrir kvöldið ?
Sagði Gunnhildur þér ekki að þú ættir að vera með atriði ?
Sjáumst.
Kv. Hanna Jóna
Jú hann ég er einmitt kominn með eitt atriði og það er kókosbolluát. Og gettu hver er einn af þáttakendum jú að ert þú mín kæra Hanna.
Gott boð en varla gerlegt út af því að:
Hún yrði að innihalda undir 100 kcal
Einungis innihalda jurtafeiti
Ég verð að vera best í því sem ég keppi í annars er kvöldið ónýtt hjá öllum
Því að ég þarf að hafa pláss fyrir fleiri drykki! haha!
Svo að ég verð því miður að afþakka, en takk samt.
Gunnhildur var að tala um eitthvað atriði sem innihéldi netabol og nælonsokka. Veit ekki meir.
kv. Hanna sem er bara orðin spennt
já uhm það roðn
Hæhæ,
Hlökkum rosalega til að hitta ykkur um jólin. Við verðum að plana krakkahitting líka fyrst við sjáum ykkur foreldrana bara á jóladinnernum.
En Hanna....það er virkilega góð hugmynd að allir komi með skemmtiatriði. Hvert par mæti með eitthvað atriði. Ég er til !!! (og Einar örugglega líka :))
ahhhh takk siggi, var einmitt á revit kursus....thad er bara snild allt thad besta frá autocad og archicad gæti thad verid betra +beinn lynkur inní 3d studio max.........verd samt ad vidurkenna ad öryggisfíkillinn ég fer alltaf aftur í archicad....er bara fallegra í modelspace og líka í theim renderingum sem madur getur gert inní forritinu......
magga stína
Haha, en fyndið með sérdönsku skóna. ég hef verið að pæla að fjárfesta í slíkum munaði.
Gott að þið hafið það fínt og við vonum að ferðin til Íslands gangi vel og að þið eigið gleðileg jól.
Siggi samt soldið merkilegur með sig þegar hann hjólar framhjá manni á Falkoner og heilsar ekki einu sinni. Samt ekki nema von að hann þekki mann í dönsku útifötunum manns og hann á fullri ferð. Ég fyrirgef þetta kallinn minn.
Hilsen pilsen
Linda og Peter
Hjartans elsku frænkan mín.
Innilega til hamingju með daginn þinn.Hlakka mikið til að sjá ykkur öll um jólin. Herdís og Edda komu í gær - EKKI MJÖG leiðinlegt!!!!
Knús og kossar til allra.
Linda Rós frænka
Skrifa ummæli