þriðjudagur, nóvember 04, 2008

Leigubíl og ekkert lestarrugl

Það var um daginn að við fórum í fiskitorgið sem að er verslunarmiðstöð hér rétt hjá. Siggi, Friðrika og Jakob voru eitthvað að bardúsa þar sem að Gunnhildur var eitthvað slöpp og varð eftir heima (Sigga tókst að smita hana þar sem að hann var búinn að vera veikur í tvær vikur). Við fórum í allar helstu búðirnar og að endingu var fengið sér ís.


Það er skemmst frá því að segja að þegar að hún fr Ásta er hérna í heimsókn og arf að fara í Fiskitorgið þá segir hún iðulega „æj eigum við ekki bara að taka leigubíl það kostar hvort eð er það sama“. Það er reyndar ekki alveg rétt en nálægt er það. Og ekki finnst krökkunum það leiðinlegt að ferðast um í drossíum bæjarins.


Vindum okkur nú aftur að umræddum degi þegar að þremenningarnir voru í verslunarmiðstöðinni. þegar að hugað var að heimferð eftir langa og viðburðaríka ferð. Þau nálgast aðalútganginn sem að er nýtískuleg snúningshurð og verða vör við að það er smá rigning úti. Þá lítur Friðrika á pabba sinn og hefur samræður.

F:pabbi sérðu rigninguna
P : já
F:og þú ert nýbúinn að vera veikur eigum við bara ekki að taka leigubíl
P:nei Friðrika við erum með lestarkort
F.en pabbi þú ert nýbúinn að vera veikur og þú ert nú ekkert vel klæddur
P:jú ég er nú alveg nógu vel klæddur fyrir svona smá rigningu
F:pabbi viltu verða blautur og þá verður þú kannski aftur veikur ég meina það er næstum því jafn dýrt að taka leigubíl eins og að taka lestina (takk Ásta)
P:nei Friðrika við förum í lestina
F: þá það þú um það ef að þú vilt verða veikur aftur


3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ þið öll !
Hún Friðrika er nú bara alveg dásamleg, það verður gaman að sjá hvernig mamma hún verður í framtíðinni.

Miss you Kveðja Heiðrún og strákarnir

Nafnlaus sagði...

Æðisleg börn sem þið eigið :)

Fallegar myndir af þeim.

kv. María

Nafnlaus sagði...

vá hvað vampírumyndin af Friðriku er eitthvað.......eðlileg haha. Hún er svo mikill performer að mér finnst hún alltaf í sínum gír þegar hún er komin í gervi :)

Frábært að sjá þessar flottu myndir og rosalega er hann Jakob orðinn fullorðinslegur, allt barnaspekk runnið af honum og svona :)

Knús,
Ragga